Party Zone listinn top 30

Party Zone listinn fyrir október og nóvember 2021. Allt það heitasta sem er að gerast í danstónlistinni þessa dagana að mati þáttarstjórnenda og helstu plötusnúða þáttarins í tæplega þriggja tíma þætti. Í þetta skiptið var ákveðið að steypa saman október og nóvember listanum í einn svakalega þéttan lista. Fjölbreyttur og flottur listi þar sem meðal annars má heyra íslenskt teknó, ýmsa klúbbaslagara og aðra partý smelli. Listann sjálfan má sjá á Facebook síðu þáttarins, facebook.com/partyzone.is. Múmía þáttarins er síðan topplag Party Zone listans fyrir 30 árum síðan, þriðju vikuna í nóvember 1991. Hlustið og njótið!

647
2:53:41

Vinsælt í flokknum Party Zone