Segir Dyflinnarreglugerðina í raun óvirka

Angela Merkel kanslari Þýskalands segir að Dyflinnarreglugerðin sé í raun óvirk og að það þurfi að gera breytingar á fyrirkomulagi innflytjendamála í Evrópu. Þetta sagði hún á blaðamannafundi með forsætisráðherra Spánar Pedro Sanchez. Í gær tók gildi samkomulag milli Spánar og Þýskalands um að Þjóðverjar geti snúið hælisleitendum við, sem upphaflega komu til Evrópu í gegnum Spán. Þar er aðallega um að ræða fólk sem hefur lagt út á Miðjarðarhafið frá Marokkó og Túnis, alls 24 þúsund manns á þessu ári.

68
00:54

Vinsælt í flokknum Útvarpsfréttir