Búist við holskeflu af kærum á hendur Monsanto
Búist er við holskeflu af kærum á hendur bandaríska landbúnaðarvöruframleiðandanum Monsanto eftir að kviðdómur í San Francisco dæmdi fyrirtækið til að greiða háar skaðabætur til manns, sem er langt leiddur af krabbameini. Maðurinn er með Hodgkins sjúkdóm. Hann var umsjónarmaður á skólalóð og hélt því fram krabbameinið mætti rekja að einhverju leiti til notkunar hans á Roundup arfaeyðinum. Kviðdómurinn komst að sömu niðurstöðu. Hann fékk sér dæmdar sem nemur nærri 32 milljörðum króna í skaðabætur. Fyrirtækið segist munu áfrýja dómnum og berjast gegn honum af öllum mætti. Tekist hefur verið á innan Evrópusambandsins um notkun á Roundup, enda hefur frönsk rannsóknarstofnun sem tilheyrir Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni skilgreint virka efnið í Roundup sem "líklegan krabbameinsvald." Það er þó enn selt í álfunni, meðal annars hér á landi. Roundup er selt í garðvöruverslunum og er vinsælt til eyðingar á illgresi og gróðri í stígum og á stéttum.