Vinnumálastofnun barst tilkynning um hópuppsögn

Vinnumálastofnun barst í gærkvöldi tilkynning um hópuppsögn, þá fyrstu í þessum mánuði. Um var að ræða fyrirtæki í veitingageiranum og segir Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar að þrjátíu og sex manns hafi misst vinnuna. Hún telur ekki loku fyrir það skotið að fleiri hópuppsagnir berist stofnuninni enda enn nokkrir dagar eftir af októbermánuði. Nokkrum starfsmönnum Borgarleikhússins var sagt upp störfum í gær, en ekki er þó um hópuppsögn að ræða.

38
00:24

Vinsælt í flokknum Fréttir