Samkomulag við skuldabréfaeigendur í höfn hjá WOW air
WOW air hefur náð samkomulagi við fjárfesta, sem keyptu skuldabréf í útboði fyrirtækisins í fyrra, um skilmálabreytingar á skuldabréfunum. Samkomulagið var forsenda fyrir því að fjárfesting Indigo Partners í WOW air næði fram að ganga.