Ísland í dag - Metsöluhöfundurinn Yrsa er með jólakúlublæti

Metsölu og verðlauna rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir er með nett blæti fyrir jólakúlum að eigin sögn. Hún er alltaf með þrjú jólatré heima hjá sér um jólin og fjórða tréð er í vinnslu. Yrsa safnar jólatrésskrauti af miklum krafti og er búin að fylla háaloftið hjá sér af kössum með skrauti og bílskúrinn sem planað er að byggja við húsið verður einnig fyllltur af jólatrésskrauti segir Yrsa í gríni. Jólatrén hennar eru ævintýralega falleg, eitt er hvítt með bleiku skrauti annað er þriggja metra hátt svo þakið skrauti að ekki sést í tréð og þriðja tréð er með gylltu og gamaldags skrauti. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og fékk að skoða þessi ótrúlegu tré.

11064
07:40

Vinsælt í flokknum Ísland í dag