The Vintage Caravan - Led Zeppelin Heiðurstónleikar

Led Zeppelin er af mörgum talin ein áhrifamesta rokkhljómsveit allra tíma. Þeir eru meðal mest seldu listamanna heimsins og hafa selt um 300 milljón plötur á heimsvísu. Allar níu stúdíóplötur sveitarinnar komust á topp 10 á Billboard vinsældalistanum og 6 þeirra alla leið í fyrsta sæti. Rolling Stone tímaritið lýsti þeim sem „the heaviest band of all times“ og „unquestionably one of the most enduring bands in rock history“. Hljómsveitin var tekin inn í Rock and Roll Hall of Fame árið 1995. Á þessum tónleikum verða spiluð bestu lög þessarar frábæru hljómsveitar. The Vintage Caravan er ein kraftmesta tónleikasveit landsins og vinsældir hennar ná langt út fyrir landsteinana, eru þeir nýlega komnir heim úr vel heppnaðri tónleikaferð um Suður Ameríku. Í október og nóvember 2023 spilar sveitinn einnig á fjölmörgum tónleikum í Evrópu. Hljómsveitin er að túra um Evrópu og halda tæplega 30 tónleika víðsvegar um álfuna, meðal annars á Spáni, Frakklandi, Hollandi, Belgíu, Bretlandi og Ítalíu svo eitthvað sé nefnt. Hér heima spiliðu þeir á tónleikum Trúbrots öll lögin af plötunni Lifun í Eldborg við góðan orðstýr. Ekki missa af kraftmiklum tónleikum! Fytjendur: The Vintage Caravan - Óskar Logi Ágústsson - Alexander Örn Númason - Stefán Ari Stefánsson Dagur Sigurðsson Eyþór Ingi Gunnlaugsson Matthías Matthíasson Stefanía Svavarsdóttir

398

Næst í spilun: Addi

Vinsælt í flokknum Addi