Lærum League of Legends - Þáttur 3

Í tilefni þess að Heimsmeistaramótið í League of Legends sé haldið hér á landi hefur Rafíþróttasamtök Íslands framleitt stutt kennslumyndbönd til að kynna almenningi fyrir League of Legends. League of Legends er strategískur liða leikur eða herkænskuleikur , markmiðið er að brjótast inn í höfuðstöðvar óvinanna og taka yfir þær áður en liðið missir sínar eigin bækistöðvar! Kannist þið við þetta? Í síðasta þætti fórum við yfir það hvernig leikurinn spilast og hvernig annað liðið sigrar og heimili allra keppna, kortið Summoners rift. Í þessum þætti ætlum við að kafa ögn dýpra inn í hvert hlutverk hvers liðsfélaga er og fá innsýn inn í hvað það er sem gerir League of Legends svona spennandi.

514
02:26

Vinsælt í flokknum Rafíþróttir