Leit heldur áfram í dag en 200 manns taka þátt í henni

Pilturinn sem saknað er, við Núpá í Eyjafirði og leitað hefur verið að frá því tilkynning barst lögreglu um að slys hafi átt sér stað á miðvikudagskvöld, heitir Leif Magnús Grétarsson til heimilis að Heiðarvegi 58 Vestmannaeyjum. Hann er 16 ára gamall, fæddur í Noregi árið 2003. Leit heldur áfram í dag en 200 manns taka þátt í henni. Leitin er ein sú umfangsmesta af þessu tagi sem lögregla og björgunarfólk hefur ráðist í.

16
02:22

Næst í spilun: Fréttir

Vinsælt í flokknum Fréttir