Harmageddon - Eminem var æskuhetja Hugins
Tónlistarmaðurinn Huginn er hluti af Kópbois genginu og hefur átt mörg af vinsælustu lögum ársins, án þess þó að fólk þekki hann endilega í sjón. Smellir á borð við Klakar hafa heyrst töluvert á öldum ljósvakans og m.a.s. náð inn á leikskólana, þar sem börnin kyrja viðlagið í tíma og ótíma.