Ánægð með vegan pizzurnar í fjöldahjálparstöðinni

Leanne Jagger var á ferð frá Bretalandi til Chicago þegar veðrið sagði hingað og ekki lengra. „Það er eins og það er. Það voru allir að reyna að vera jákvæðir. Starfsfólkið var ótrúlegt, þau höfðu flogið til Englands fyrst. Þau réttu okkur mat og vatn. Miðað við aðstæðurnar var þetta eins gott og hægt gat orðið,“ sagði Jagger. Hún var yfir sig hrifin af athvarfinu í íþróttahúsinu að Sunnubraut. „Mér finnst mikið til þess koma að þau náðu að setja þessa aðstöðu upp á svo skömmum tíma og bjóða öllum mat. Það biðu okkar pizzur þegar við komum. Meira að segja vegan pizzur.“

1292
02:16

Vinsælt í flokknum Fréttir