Skákkökur - Aðventumolar Árna í Árdal
Fyrsta smákökutegundin sem ég man eftir að hafa gert sérstaklega fyrir jólin þegar ég var yngri voru skákkökur. Vanillu- og kakódeig sem skorin eru í renninga og svo staflað saman til að mynda skákborðsmunstur. Í Aðventumolum Árna í Árdal á Stöð 2 kemur hann öllum í rétta hátíðarskapið og reiðir fram einn spennandi og bragðgóðan rétt á dag fram að jólum.