Erna Hrönn: „Eitt skemmtilegasta sumar sem ég hef upplifað í mörg ár“
Hin goðsagnakennda hljómsveit Greifarnir fagnar fertugsafmæli í ár með alvöru sveitaballarúnti um landið og nú er komið að Aratungu næstu helgi. Viddi Greifi kíkti í skemmtilegt spjall og mætti færandi hendi með glæsilegan bol sem sjá má á meðfylgjandi mynd.