Dagskrá Menningarnætur kynnt
Menningarnótt verður loksins haldin á ný þann 20. ágúst næstkomandi. Víkingar í víkingahópnum Rimmugýgi mættu á fundinn með skildi sína og sverð. Þorgrímur Jónsson tónlistarmaður og Kristjana Stefáns söngkona fluttu nokkur lög. Fulltrúar Support for Ukraine Iceland mættu á staðinn en samtökin eru heiðursgestur Menningarnætur í ár.