Fleiri fréttir

Sænskir bankar kanna kókaínneyslu nýrra starfsmanna

Sænsku bankarnir Nordea og SEB kanna með prófunum alla nýja starfsmenn sína til að sjá hvort þeir noti kókaín. Hjá Nordea fara allir sjálfkrafa í slíka prófun en hjá SEB er tekið tilviljanakennt úrtak meðal þessara starfsmanna.

Skartgripaveldi Faberge endurreist á netinu

Tatiana Faberge, afkomandi hins fræga rússneska skartgripasmiðs Peter Carl í þrjá ættliði, ætlar að endurvekja hið forna skartgripaveldi að nýju. Sökum kreppunnar verður þó ekki farin hefðbundin leið með því að opna búðir með nafinu Faberge heldur verður notast við netið til að selja skartið.

Risademantur fannst í Suður-Afríku

Risademantur fannst í vikunni í Cullinan námunni í Suður-Afríku en náman er þekkt fyrir að þar hafa stærstu demantar í heimi fundist. Þessi sem hér um ræðir er 507 karöt, eða 100 grömm, að stærð og er verðmæti hans áætlað vera rúmlega 12 milljarðar kr.

Kreppan mun verri í Danmörku en áður var talið

Samkvæmt nýjum tölum frá hagstofu Danmerkur minnkaði landsframleiðsla landsins um 2,6% milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Hefur landsframleiðslan því lækkað um 7,2% á liðnum 12 mánuðum sem er mun meira en sérfræðingar áttu von á.

The City – Wall Street, nýtt lúxusflug fyrir fjármálafólk

British Airways er byrjað að bjóða fjármálafólki og verðbréfasölum upp á nýtt lúxusflug beint frá The City, fjármálahverfi London og til Wall Street í New York. Notast er við Airbus A318 vélar sem hefur verið breytt þannig að farþegafjöldanum um borð hefur verið fækkað úr 100 og niður í 32.

Fimm stjörnu lúxus fyrir minna en 25.000 krónur

Kreppan hefur gert það ódýrara að búa á lúxus-hótelum. Nú er hægt að leigja sér herbergi á fimm stjörnu hótelum fyrir minna en 25.000 kr. á nóttina í 26 borgum heimsins.

Findus í Bretlandi rís úr öskunni eftir Landsbankaskellinn

Verksmiðja Findus í Newcastle er nú að rísa upp úr öskunni en reksturinn komst í þrot skömmu eftir áramótin þegar verksmiðjan brann og kostaði það 430 starfsmenn vinnu sína. Landsbankinn var aðalviðskiptabanki Findus í Bretlandi og þegar bankinn fór í þrot fylgdi Findus með í fallinu.

Framtíð Aston Martin óljós, sjóðir eigenda eru tómir

Framtíð breska bílaframleiðendans Aston Martin er óljós þar sem einn aðaleigandi fyrirtækisins hefur viðurkennt að hann á í erfiðleikum með að endurfjármagna skuldir sínar. Eigandinn sem hér um ræðir er fjárfestingasjóðurinn Investment Dar sem er í eigu hins opinbera í Kúwait.

Niðursveiflan í Litháen hefur náð hámarki

Niðursveiflan í Litháen, sem er sú dýpsta innan Evrópusambandslandanna, er líklega að ná hámarki og má búast við því að hagvöxtur verði á næsta ári, haldi eftirspurn áfram að aukast.

Gömul sjónvörp eru tuga milljóna virði

Talið er að gömul sjónvörp frá millistríðsárinum muni fara á tugi milljóna kr. á uppboði sem haldið verður í þessari viku. Það er uppboðshaldarinn Bonhams sem stendur fyrir uppboðinu.

Lánakjörin batna hjá Atlantic Petroleum

Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum hefur náð samkomulagi við lánadrottna sína um betri kjör á lánum til endurfjármögnunnar félagsins. Tilkynnt var um endurfjármögnunina þann 9. júní en hún fólst í bæði auknum lántökum og hlutafjáraukningu.

Brown vill lög til að koma í veg fyrir launabónusa

Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, ætlar að banna bónuslaunakerfi sem tíðkaðist í bönkunum fyrir fjármálakreppu. Hann ætlar að neyða bankana til þess að hegða sér með ábyrgari hætti.

Auðugustu Norðmennirnir tapa 2.100 milljörðum

Sameiginlegt tap 400 auðugustu Norðmannana á síðusta ári nemur tæplega 100 milljörðum norskra kr. eða um 2.100 milljörðum kr. Ef litið er á þá 10 sem skipa toppinn á listanum yfir auðugustu menn Noregs er tap þeirra samtals 27 milljarðar norskra kr. eða rúmlega fjórðungur af heildartapi þessa fólks.

,,Armageddon" ef bandarískar skuldir hætta að seljast

Julian Robertson stofnandi og stjórnarformaður Tiger Management segir að það muni liggja við heimsendi (Armageddon) ef Japanir og Kínverjar gefist upp á að kaupa bandarískar skuldir, það er ríkisskuldabréf.

Óttast að danskir „gulldrengir“ hafi komið auðæfum undan

Talið er að talsverður fjöldi fjármálamanna og fasteignabraskara Í Danmörku hafi komið töluverðu af auðæfum sínum undan þrotabúum og geymi peninga sína erlendis. Skiptastjórar þrotabúa þeirra óttast að þessir fjármunir muni aldrei finnast.

Fjórir af hverjum tíu auðmönnum hagnast í kreppunni

Samkvæmt nýrri könnunun hafa fjórir af hverjum tíu auðmönnum í heiminum hagnast á kreppunni undanfarið ár. Svo virðist sem útlitið sé bjart hjá þessum hluta heimsbúa því átta af hverjum tíu auðmanna búast við að hagnast á næsta ári.

Óvíst hvort Jón Ásgeir haldi söluverði íbúðar í Khöfn

Vefsíðan business.dk greinir frá því í dag að lúxusíbúð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Kaupmannahöfn hafi verið seld en að óvíst sé hvort Jón Ásgeir fái að halda söluverðinu. Fréttastofa hefur áður greint frá þessari íbúð og sagt hana vera bitbein milli þrotabús Baugs í Danmörku og Gaums eignarhaldsfélags Jóns Ásgeirs og fjölskyldu.

Breskir stórbankar voru nokkrum tímum frá hruni

Bresku stórbankarnir HBOS og Lloyds voru aðeins nokkrum klukkutímum frá hruni síðasta haust. Þetta segir Mervyn King seðlabankastjóri Englands í nýjum þætti á BBC, The Love of Money, sem sýndur er í dag.

Olíuverðið fellur undir 70 dollara eftir birgðatölur

Heimsmarkaðsverð á olíu á markaðinum í New York féll í 69,3 dollara á tunnuna í dag eftir að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna birtir nýjar tölur um olíubirgðir landsins. Reyndust birgðirnar mun meiri en sérfræðingar höfðu spáð fyrir um.

Norðmenn ólmir í að hefja olíuleit við Jan Mayen

Á sama tíma og allir eru hættir við olíuleit og rannsóknir á Drekasvæðinu berast fréttir frá Noregi um að Norðmenn séu ólmir í að hefja olíuleit við Jan Mayen-hryggnum það er sín megin á svæðinu.

Útlendingar mjólka danska skattkerfið

Ríkissjóður Danmerkur er hreint sjálfsafgreiðslu hlaðborð fyrir hátt í 50.000 útlendinga sem vinna í landinu. Og það eru í raun engir möguleikar á að hafa stjórn á því.

Húsaleigan lækkar í dýrustu götu heimsins

Verslunargatan Fifth Avenue í New York er á toppi listans yfir dýrustu götur heimsins en þar hefur húsaleigan lækkað töluvert í ár eða um rúm 8%. Ferfetið við götuna er nú leigt á 1.700 dollara eða um 209 þúsund kr.

Moody´s sakað um að blása upp lánshæfiseinkunnir

Fyrrverandi greinandi hjá matsfyrirtækinu Moody´s hefur sakað Moody´s um að blása upp lánshæfiseinkunnir sínar. Hefur hann farið með málið fyrir ransóknarnefnd á Bandaríkjaþingi, að því er segir í blaðinu Wall Street Journal í dag.

Barroso minnti írska kjósendur á örlög Íslands

José Manuel Barroso nýkjörinn forseti framkvæmdastjórnar Ervrópusambandsins minnti írska kjósendur á örlög Íslendinga þegar hann heimsótti Limerick á Írlandi um síðustu helgi. Barroso var þar á ferð til að styðja baráttuna fyrir því að Írar samþykktu Lisbon-sáttmálann í komandi kosningum.

Blóðbað meðal svissneskra úraframleiðenda

Sala á lúxusvörum hefur hrapað í kreppunni og nú finna starfsmenn hjá svissneskum úraframleiðendum fyrir því. Talið er að minnkandi sala á úrum muni kosta um 3.000 störf í þessum iðnaði í Sviss.

Tvívolíið í Kaupmannahöfn heldur sínu í kreppunni

Þótt að komum erlendra ferðamanna í Tívolíið í Kaupmannahöfn hafi fækkað töluvert í ár hefur komum heimamanna fjölgað á móti þannig að þessi þekkti ferðamannastaður hefur haldið sínu í kreppunni.

Bank of America fyrir dóm vegna bónusgreiðslna

Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna (SEC) ætlar að draga stjórn Bank of America fyrir dómstóla vegna þess að stjórnin dró fjárfesta á asnaeyrunum þegar hún lýsti því yfir að engar bónusgreiðslur yrðu greiddar til starfsmanna Merrill Lynch án samþykkis hlutafjáreigenda.

Norðmenn íhuga olíuleit við Jan Mayen

Í dag mun sendinefnd frá Noregi með Terje Riis-Johansen olíu- og orkumálaráðherra landsins í broddi fylkingar heimsækja Jan Mayen. Samkvæmt frétt um málið á vefsíðunni e24.no eru Norðmenn nú að íhuga olíuleit á Jan Mayen hryggnum í framhaldi af áformum Íslendinga á Drekasvæðinu.

Íslandshrun leiðir til breytinga í fjármálum breskra sveitarfélaga

Hið gífurlega tap bæjar- og sveitarfélaga á hruni íslenska bankakerfisins s.l. haust hefur leitt til grundvallarbreytinga í stjórn á fjármálum þessara félaga. Fulltrúar þeirra eiga nú í viðræðum við forstjóra sjóða í The City, fjármálahverfi Lundúna, um stofnun nýrra sjóða sem sjái sérstaklega um að ávaxta fjármuni bæjar- og sveitarfélaganna.

Hertar bankareglur G-20 munu draga úr hagnaði banka

Leiðtogar G-20 ríkjanna hittast í vikunni og á fundi þeirra verður reynt að herða reglur um starfsemi banka. Í frétt á Bloomberg fréttaveitunni segir að um umfangsmestu uppstokkun á þessum reglum verði að ræða síðan upp úr 1930. Talið er að reglurnar muni draga úr hagnaði bankanna og á þeim bæjum eru menn ekki sáttir.

Fjármálaspekingur: Alheimsgjaldmiðill árið 2024

Kínverski fjármálaspekingurinn og rithöfundurinn Song Hongbing segir í nýrri bók sinni, Gjaldeyrisstríðin, annar hluti (The Currency Wars Two) að dularfull en geysiöflug alþjóðleg samtök muni árið 2024 losa sig við dollara og aðra helstu gjaldmiðla heimsins og taka upp einn sameiginlegan alheimsgjaldmiðil.

Karen Millen langar að kaupa Karen Millen af Kaupþingi

Tískudrottningin Karen Millen hefur áhuga á því að kaupa tískuverslanakeðjuna Karen Millen af skilanefnd Kaupþings. Millen stofnaði keðjuna árið 1981 og var þá aðeins með 100 pund milli handanna.

AGS selur 400 tonn af gulli fyrir 1.600 milljarða

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur ákveðið að selja yfir 400 tonn af gullforða sínum. Verðmæti þessa gulls er um 13 milljarðar dollara, eða rúmlega 1.600 milljarðar kr.

Landstjóri Guernsey fagnar málshöfðun gegn neyðarlögunum

Lyndon Trott landstjóri á Guernsey segir að hann fagni fyrirhuguðu dómsmáli innistæðueigenda í útibúi Landsbankans á eyjunni. Ennfremur muni stjórnvöld á eyjunni styðja við bakið á innistæðieigendunum fari mál þeirra fyrir íslenska dómstóla.

Magma: Tapaði rúmum 500 milljónum á síðasta ári

Tap Magma Energy nam tæpum 4,5 milljónum dollara á síðasta rekstrarári félagsins (árið er júní til júní) eða rúmlega 500 milljónum kr. Af þessu tapi féllu tæplega 1,9 milljón dollara til á síðasta ársfjórðungi rekstrarársins.

Álverðið hefur hækkað um 100 dollara í vikunni

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað um rúmlega 100 dollara í vikunni. Þessa stundina stendur verðið í 1.946 dollurum á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga sem er helsta viðmiðunarverðið á þessum markaði.

Markaðsvirði Twitter orðið milljarður dollara

Markaðsverðmæti félagslegu netsíðunnar Twitter er nú orðið einn milljarður dollara eða tæplega 124 milljarðar kr. Þetta þykir nokkuð gott í ljósi þess að Twitter er enn í sömu skrifstofum í San Francisco þar félagið hóf starfsemi sína 2006 og starfsfólkið telur ekki nema um 50 manns.

Adidas og Puma binda enda á 60 ára illdeilur

Þýsku íþróttavörurisarnir Adidas og Puma hafa ákveðið að binda endi á 60 ára gamlar illdeilur milli fyrirtækjanna. Verður þetta gert með vinaleik í fótbolta milli starfsmannaliða þeirra.

deCODE fær aðvörun frá Nasdaq

deCODE hefur aftur fengið aðvörun frá Nasdaq kauphöllinni í New York vegna þess að verð á hlutum í félaginu hefur verið undir lögboðnu lágmarki undanfarna 30 daga. Samkvæmt reglum Nasdaq má verð á hlut í félögum sem skráð eru á þessum markaði ekki vera undir einum dollara.

Sjá næstu 50 fréttir