Viðskipti innlent

Hefja við­ræður um sölu Blikastaðalandsins

Árni Sæberg skrifar
Blikastaðalandið er stærsta óbyggða landsvæðið innan vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins.
Blikastaðalandið er stærsta óbyggða landsvæðið innan vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Arnar

Arion banki hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags bankans, Landeyjar ehf., í Blikastaðalandi ehf., sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ.

Í tilkynningu þess efnis til Kauphallar segir að kaupverðið sem er til umræðu í viðskiptunum rúmist innan þeirra 14 til 16 milljarða króna marka sem kynnt voru í kauphallartilkynningu bankans 25. september síðastliðinn.

Íslensk verðbréf eigi í samstarfi við fasteignaþróunarfélagið Klasa ehf. um kaupin sem fyrirhugaður þróunaraðili verkefnisins ásamt því að ráðgert sé að Klasi verði kjölfestufjárfestir í sjóðnum.

Viðræður aðila byggi á tilboði sem sjóðurinn lagði fram í öðrum fasa söluferlis Blikastaðalands ehf. Vonir standi til að viðræðum um kaupin ljúki fyrir lok þessa árs með gerð kaupsamnings og að kaupin komi til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi 2027.

Í árshlutareikningum Arion banka fyrir fyrstu níu mánuði ársins sé Blikastaðaland ehf. metið á um 7,6 milljarða króna. Þar sem til staðar sé óvissa varðandi fyrirvara tilboðs Íslenskra verðbréfa hafi ekki verið tekin ákvörðun um að uppfæra bókfært verðmat Blikastaðalands ehf. á þessum tímapunkti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×