Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Eiður Þór Árnason skrifar 29. október 2026 16:41 Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans. Vísir/Vilhelm Landsbankinn hagnaðist um 33,1 milljarð króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þetta er aukning frá síðasta ári þegar hagnaður nam 29,5 milljörðum á sama tímabili. Hreinar vaxtatekjur voru 58,3 milljarðar króna samanborið við 49,4 milljarða á fyrstu níu mánuðum 2025. Nemur þetta um 18 prósenta aukningu milli ára.
Bein áhrif verðbólgu eru áfram „óvenju mikil“ að sögn stjórnenda. Hreinn vaxtamunur nemur 3,2 prósentum en var 2,9 prósent í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu Landsbankans til Kauphallar en vaxtamunur er mismunurinn milli þeirra vaxta sem bankinn rukkar vegna útlána og þeirra sem hann greiðir út vegna innlána. Hreinar þjónustutekjur námu 9,2 milljörðum króna út september og eru nær óbreyttar milli ára. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2026 var 11,1 milljarður króna og var svipaður í fyrra. Þróunin sé áhyggjuefni Virðisrýrnun útlána og krafna er sögð aukast milli ára og skýrast að mestu leyti af versnandi horfum í byggingariðnaði sem megi meðal annars rekja til hárra vaxta. Vanefndir hafi aukist hjá fyrirtækjum. „Þótt vanskil einstaklinga séu enn lítil sjáum við skýr merki um að verulega hafi hægt á umsvifum í byggingariðnaði. Háir vextir og hægari sala íbúða auka fjármagnskostnað og geta gengið hratt á eigið fé byggingarfyrirtækja. Langvarandi samdráttur í uppbyggingu getur jafnframt haft áhrif á framboð íbúða þegar eftirspurn tekur við sér á ný. Þessi þróun er áhyggjuefni og undirstrikar mikilvægi þess að skapa aukinn stöðugleika í efnahagslífinu. Í uppgjöri bankans er aukið framlag í virðisrýrnunarsjóð til að mæta mögulegum vanefndum, sér í lagi í byggingariðnaði,“ segir Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, í tilkynningu. Arðsemi eiginfjár Landsbankans var 13,3 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 12,2 prósent á sama tímabili í fyrra. Afkoma af vátryggingarsamningum var 2,1 milljarður króna á fyrstu níu mánuðum 2026 og eykst um 22,3 prósent á milli ára en tryggingafélagið TM er í eigu Landsbankans. Kostnaður sem hlutfall af tekjum samstæðunnar lækkar úr 33,2 prósentum í 30,5 prósent á fyrstu níu mánuðum 2026. Á aðalfundi Landsbankans í mars var samþykkt að greiða 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa vegna reikningsársins 2025. Heildararðgreiðslur bankans frá árinu 2013 nema 245,5 milljörðum króna, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. Ríkissjóður á 98,2 prósenta hlut í bankanum. Hærri bankaskattur auki kostnað Lilja Björk gerir kostnað vegna fyrirhugaðrar hækkunar á bankaskatti að umtalsefni líkt og bankastjóri Íslandsbanka. „Mikið hefur verið fjallað um áhrif bankaskatts og það er vert að rifja upp að þegar bankaskattur var lækkaður í apríl 2020 lækkaði Landsbankinn útlánsvexti. Við höfum skilað umsögn um fyrirhugaða hækkun bankaskatts og fjöllum einnig um möguleg áhrif hans í skýrslu stjórnar. Eins og fram kemur í umsögn okkar myndi skatturinn hafa áhrif á fjármögnunarkostnað bankans og samkeppnisstöðu við aðra lánveitendur, s.s. lífeyrissjóði og erlenda banka. Kostnaðurinn af bankaskatti og vaxtalausri bindiskyldu samsvarar 0,65 prósentustigum í auknum fjármagnskostnaði fyrir hvert útlán en myndi hækka í 0,81 prósentustig ef áformin ganga eftir,“ segir Lilja í tilkynningu. Íslandsbanki greindi einnig frá árshlutauppgjöri sínu í dag og hagnaðist bankinn um tæpa 22 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Landsbankinn Tengdar fréttir Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Jókst hann ár frá ári en bankinn hagnaðist um 6,9 milljarða á sama þriggja mánaða tímabili árið 2025. Alls hefur Íslandsbanki hagnast um 21,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs, samanborið við 19,3 milljarða á sama tímabili árið 2025. 29. október 2026 16:00 Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira
Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Jókst hann ár frá ári en bankinn hagnaðist um 6,9 milljarða á sama þriggja mánaða tímabili árið 2025. Alls hefur Íslandsbanki hagnast um 21,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs, samanborið við 19,3 milljarða á sama tímabili árið 2025. 29. október 2026 16:00