Spænskt félag kaupir Samskip Árni Sæberg skrifar 28. október 2026 15:55 Vicente Boluda Fos, stjórnarformaður Boluda, Ignacio Boluda Ceballos, stjórnarformaður Boluda Shipping, Ólafur Ólafsson, aðaleigandi Samskipa og Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri samstæðu Samskipa. Ljósmynd/Eyþór Spænska skipafélagagið Boluda Shipping hefur fest kaup á flutningsfyrirtækinu Samskipum og dótturfélögum þess. Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir voru langsamlega stærstu eigendur skipafélagsins rótgróna. Kaupverðið er trúnaðarmál.
Samkvæmt heimildum Vísis var starfsmönnum Samskipta tilkynnt um kaupin á starfsmannafundi eftir hádegi í dag. Fréttatilkynning um kaupin barst fjölmiðlum á fimmta tímanum. Samskip voru stofnuð árið 1990 en byggðu á grunni skipadeildar Sambands íslenskra Samvinnufélaga. Síðan þá hefur skipafélagið vaxið gríðarlega og er eitt af leiðandi flutningafyrirtækjum Evrópu en höfuðstöðvar þess eru í Rotterdam í Hollandi. Ólafur Ólafsson var stærsti eigandi Samskipa ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Kristjánsdóttur.Vísir/Vilhelm Greint var frá því janúar síðastliðnum að Ólafur Orri Ólafsson hefði verið ráðinn nýr forstjóri samstæðu Samskipa en hann er sonur eigendanna fyrrverandi Ólafs og Ingibjargar. Í fréttatilkynningu segir að hann verði áfram forstjóri samstæðunnar. Fréttatilkynning Samskipa í heild sinni: „Spænska fjölskyldufyrirtækið Boluda Shipping hefur gengið frá samkomulagi um kaup á öllu hlutafé í Samskipum. Skrifað var undir samkomulagið á skrifstofu Samskipa í Kjalarvogi í dag. Gert er ráð fyrir að kaupin gangi í gegn 1. janúar 2027, að fengnu samþykki eftirlitsaðila og að uppfylltum öðrum skilyrðum. Aðaleigendurnir, Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir, ganga þá út úr eigendahópnum eftir að hafa byggt upp fyrirtækið á Íslandi og í Evrópu í meira en 30 ár. Kaupverð er trúnaðarmál. Sameinað félag myndar umfangsmesta sjóflutninganet innan Evrópu; frá Norður-Evrópu til Íberíuskagans, Kanaríeyja og Vestur-Afríku. Gert er ráð fyrir að í netinu verði 32 skip á 18 siglingaleiðum, 21 hafnarbakki, víðfeðmt lestarkerfi og yfir 500 flutningabílar sem tengja markaði í 28 löndum. Sérstaða Samskipa felst í því að tengja skipaflutninga við lestir og flutningabíla. Lestarkerfi félagsins, með fimm lestarstöðvum, flytur vörur frá höfnum langt inn á meginland Evrópu og til Skandinavíu. Með kaupunum tengist það siglingaleiðum Boluda og verður til samfelld flutningskeðja frá Vestur-Afríku og Kanaríeyjum, til meginlands Evrópu og yfir Atlantshafið til Íslands og Færeyja. Samanlögð velta félaganna er rúmlega tveir milljarðar evra og hjá þeim starfa um 11.500 manns. Þjónustan á Íslandi efld Ólafur Orri Ólafsson verður áfram forstjóri samstæðu Samskipa og mungegna veigamiklu hlutverki í að samþætta starfsemina undir nýju eignarhaldi. Eigendaskiptin munu hafa jákvæð áhrif á núverandi þjónustu Samskipa á Íslandi, sem verður efld með aðkomu nýrra eigenda. Vörumerki Samskipa og íslenskar rætur félagsins verða áfram mikilvægur hluti af sameinuðu félagi. Boluda hyggst fjárfesta í uppbyggingu flutningsnetsins, auka flutningsgetu og fjölga tengingum. Ólafur Ólafsson, aðaleigandi Samskipa: „Við höfum byggt upp Samskip í meira en þrjá áratugi og gert félagið að leiðandi fyrirtæki í fjölþátta flutningum í Evrópu, með skipum, lestum og bílum. Með Boluda fá Samskip öflugan og traustan bakhjarl sem deilir sýn okkar og hefur vilja til að fjárfesta í næsta vaxtarskeiði. Fyrir okkur fjölskylduna eru þetta góð tíðindi og ég er sannfærður um að hið sama eigi við um Samskip og íslenskt atvinnulíf.“ Mikilvægir innviðir fyrir íslenskt atvinnulíf Samskip eiga rætur sínar á Íslandi og hafa á síðustu áratugum byggt upp eitt umfangsmesta fjölþátta flutningsnet Evrópu. Samstæðan hefur miðstöð í Rotterdam, stærstu höfn Evrópu, og er með skrifstofur í 24 löndum, starfsemi í 28 Evrópulöndum og um 1.500 starfsmenn. Skip félagsins koma við í 13 löndum og vörur fara áfram til hinna með lestum, prömmum og bílum. Skip félagsins sigla vikulega frá Reykjavík til Evrópu með viðkomu í Vestmannaeyjum og Færeyjum. Strandsiglingar tengja Ísafjörð, Sauðárkrók og Akureyri jafnframt beint við erlenda markaði. Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri samstæðu Samskipa: „Kaupin eru gríðarlega jákvæð tíðindi fyrir Samskip, viðskiptavini okkar og starfsfólk. Samskip verða hluti af enn öflugra neti og á Íslandi getum við eflt starfsemina með nýjum siglingaleiðum, bættri þjónustu og sterkari innviðum. Samskip eiga rætur sínar á Íslandi og starfsemin hér verður áfram mikilvægur hluti af sameinuðu félagi.“ Samlegð fjölskyldufyrirtækja Boluda-fjölskyldan hefur verið tengd sjóflutningum og hafnarstarfsemi í nærri tvær aldir. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til ársins 1837 og hefur í gegnum kynslóðir þróast úr staðbundinni starfsemi í eitt af leiðandi alþjóðlegum fyrirtækjum heims á sviði dráttarþjónustu, vöruflutninga og hafnarþjónustu. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á alþjóðavísu, en jafnframt haldið í þau fjölskyldugildi sem hafa einkennt reksturinn frá upphafi; langtímahugsun, ábyrgð gagnvart viðskiptavinum og starfsfólki og sterka tengingu við sjávarútveg og flutninga. Í dag eru afkomendur fjölskyldunnar enn í lykilhlutverkum innan samstæðunnar. Kjarninn í starfseminni er dráttarbátaþjónusta, en Boluda er stærst í heimi á því sviði með yfir 800 dráttarbáta í yfir 230 höfnum. Sjóflutningar eru minni hluti starfseminnar; Boluda Shipping siglir milli meginlands Spánar, Kanaríeyja og Vestur-Afríku og rekur hafnarbakka á Spáni og Kanaríeyjum. Hjá Boluda starfa um 10.000 manns. Kaupin á Samskipum eru því rökrétt næsta skref í vexti fjölskyldufyrirtækisins. Með þeim verða sjóflutningar önnur meginstoð í starfsemi Boluda, samhliða dráttarbátaþjónustunni. Flutningsnet Samskipa í Norður-Evrópu og á Norður-Atlantshafi ásamt landflutningum um alla álfuna passa vel við siglingar Boluda í Suður-Evrópu og Vestur-Afríku. Sameinað félag getur samnýtt skipaflota, hafnaraðstöðu og viðskiptatengsl. Þetta býður upp á fleiri tengingar, meiri flutningsgetu og aukinn sveigjanleika. Bæði félögin hafa áratugareynslu af þjónustu við eyjasamfélög þar sem sjóflutningar eru lífæð atvinnulífs og heimila. Með tengingu flutningakerfanna verður til samfellt net frá Vestur-Afríku og Kanaríeyjum til Íslands þar sem allar flutningsleiðir styðja hver aðra. Boluda er með sex skip í smíðum. Ignacio Boluda Ceballos, stjórnarformaður Boluda Shipping: „Markmið okkar er skýrt: að styrkja stöðu okkar í sjóflutningum innan Evrópu og efla flutningsnetið í þágu viðskiptavina. Með öflugum tengingum og sérþekkingu Samskipa, ásamt reynslu okkar af sjóflutningum og flutningaþjónustu, náum við þeirri stærð sem þarf til að ná því markmiði. Við sjáum mikla möguleika á að efla tengingar innan Evrópu og við Vestur-Afríku og munum áfram leggja áherslu á skilvirkni, áreiðanleika og góða þjónustu við viðskiptavini okkar.“ Um Boluda Boluda Shipping er einn af leiðandi alþjóðlegum þjónustuaðilum á sviði sjóflutninga og sjálfbærrar samtengdrar flutninga- og vörustjórnunar (intermodal logistics). Í gegnum Boluda Lines, stærsta skipafélag Spánar, rekur fyrirtækið 11 siglingaleiðir sem tengja Íberíuskagann við Norður-Evrópu, Kanaríeyjar og vesturströnd Afríku. Félagið starfrækir flota 15 skipa sem þjóna 33 höfnum í 14 löndum. Fyrirtækið veitir einnig hafnar- og flutningatengda þjónustu í gegnum Boluda Maritime Terminals, sem rekur alls 9 hafnarstöðvar. Þá býður dótturfélagið Boluda Logistics upp á fjölbreytta flutninga- og vörustjórnunarþjónustu sem styður við heildarlausnir félagsins. Þar á meðal eru vegasamgöngur, járnbrautarflutningar, vöruhúsalausnir og önnur þjónusta sem tryggir viðskiptavinum víðtæka þjónustu og dreifingarnet. Um Samskip Samskip eru alþjóðlegt flutninga- og vörustýringarfyrirtæki með íslenskar rætur. Félagið gegnir lykilhlutverki í tengingu Íslands við alþjóðlega markaði og sér um reglubundna flutninga milli Íslands, Evrópu, Bretlands og Norður-Ameríku, auk þess að bjóða heildstæðar flutninga- og vörustjórnunarlausnir um allan heim. Með eigin skipum, gámum, flutningabúnaði og öflugu neti samstarfsaðila veita Samskip áreiðanlega þjónustu bæði frá höfn til hafnar og frá dyrum til dyra. Fyrirtækið þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina og gegnir til að mynda mikilvægu hlutverki í inn- og útflutningi íslensks atvinnulífs. Samskip leggja ríka áherslu á sjálfbærar samgöngur og samþætta umhverfisvænni flutningslausnir í öllum flutningsmátum sínum. Fyrirtækið fjárfestir markvisst í vistvænum orkugjöfum og tækni sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Kaup og sala fyrirtækja Skipaflutningar Tengdar fréttir Nærmynd: Ævintýramaðurinn Ólafur Ólafsson Athafnamaðurinn Ólafur Ólafsson er í aðalhlutverki í öllum fréttatímum dagsins. En, hver er maðurinn? 29. mars 2017 15:44 Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Ólafur Orri Ólafsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri samstæðu Samskipa og tekur við keflinu af Kari-Pekka Laaksonen, sem gengt hefur starfinu frá árinu 2019. Ólafur Orri er sonur hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur, sem eru langstærstu eigendur Samskipa. 8. janúar 2026 11:48 Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bein útsending: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Sjá meira
Nærmynd: Ævintýramaðurinn Ólafur Ólafsson Athafnamaðurinn Ólafur Ólafsson er í aðalhlutverki í öllum fréttatímum dagsins. En, hver er maðurinn? 29. mars 2017 15:44
Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Ólafur Orri Ólafsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri samstæðu Samskipa og tekur við keflinu af Kari-Pekka Laaksonen, sem gengt hefur starfinu frá árinu 2019. Ólafur Orri er sonur hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur, sem eru langstærstu eigendur Samskipa. 8. janúar 2026 11:48