Viðskipti innlent

Sorpa fækkar starfs­mönnum um sau­tján

Árni Sæberg skrifar
Sorpa á Dalvegi.
Sorpa á Dalvegi. Vísir/Vilhelm

Sorpa framkvæmdi í dag uppsagnir í hagræðingarskyni. Samtals var tíu sagt upp, og tímabundnir samningar við sjö verða ekki endurnýjaðir. Starfsmönnum hjá Sorpu fækkar því um 17, eða um sjö prósent af heildarstarfsmannafjölda.

Í fréttatilkynningu frá Sorpu segir að með þessu náist fram sparnaður sem nemur rúmum tvö hundruð milljónum króna á ári.

„Hagræðingaraðgerðir þessar koma í beinu framhaldi af samþykkt stjórnar Sorpu bs. sem fól stjórnendum Sorpu að leita leiða til hagræðinga meðal annars til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og tryggja að þær verði undir 2,5 prósentum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×