Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar 19. október 2026 08:00 Það er merkilegt hvað auðvelt virðist að finna milljarða þegar ráðast á í nýjar stórframkvæmdir á vegum hins opinbera. Öllu erfiðara reynist að finna fé til að halda við því sem þjóðin á fyrir. Ný mannvirki eru kynnt með glæsilegum teikningum og fögrum fyrirheitum. Stjórnmálamenn tala um framtíðarsýn og framfarir. En hversu oft er rætt af sömu alvöru um endanlegan kostnað, rekstur næstu áratuga og verkefnin sem þurfa að bíða? Það er löngu tímabært að stjórnvöld sýni meiri ábyrgð í opinberum framkvæmdum. Reynslan ætti að hafa kennt okkur að stórhugur án langtímahugsunar getur orðið þjóðinni dýr. Það er auðveldara að lofa framkvæmd en að standa skil á reikningnum. Vaxtareikningurinn sem enginn klippir borða yfir Samkvæmt áætlunum fyrir árið 2027 nemur samanlagður halli ríkissjóðs á árunum 2019–2026 um 866 milljörðum króna. Árið 2027 er gert ráð fyrir tæplega fimm milljarða króna afgangi, gangi áætlanir eftir. Vaxtagjöld ríkissjóðs eru áætluð um 155 milljarðar króna árið 2027, eða um 425 milljónir króna á hverjum einasta degi. Þegar slíkar fjárhæðir fara í vexti hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hversu mikið svigrúm þjóðin hafi til nýrra skuldbindinga. Stjórnvöld þurfa jafnframt að sýna meiri festu í því að tryggja þjóðinni eðlilegan afrakstur af auðlindum hennar. Ekki verður endalaust kallað eftir auknum útgjöldum án þess að ábyrgð sé sýnd við öflun og ráðstöfun tekna. Þjóðarhöllin – hver greiðir þegar upp er staðið? Áform eru um byggingu þjóðarhallar í Laugardal fyrir um 16,8 milljarða króna. Enginn þarf að efast um að íþróttafólk þurfi góða aðstöðu. En góð hugmynd verður ekki sjálfkrafa að góðri fjárfestingu þótt hún sé glæsileg á teikningu. Hver verður endanlegur kostnaður? Hvernig skiptist fjármögnunin milli ríkis og Reykjavíkurborgar? Hver ber áhættuna ef kostnaður hækkar og hver stendur undir rekstrinum ef tekjur reynast minni en áætlað var? Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar hefur verið til umræðu um árabil. Því þarf að liggja skýrt fyrir hvaða skuldbindingar falla á borgina, ríkið og notendur mannvirkisins, ekki aðeins við byggingu heldur einnig vegna rekstrar, viðhalds og endurnýjunar. Það er ekki nóg að hafa efni á að reisa hús. Það þarf líka að hafa efni á að eiga það. Borgarlínan – fjárhættuspil með almannafé? Borgarlínan átti að verða stórkostlegt framfaraskref í samgöngum höfuðborgarsvæðisins. En eftir áralangan undirbúning ríkir enn veruleg óvissa um fjármögnun heildarverkefnisins og endanlega útfærslu fyrirhugaðs kerfis. Þrátt fyrir það eru framkvæmdir hafnar. Þetta minnir óneitanlega á fjárhættuspil þar sem sífellt meira er lagt undir í von um að næsta spil bjargi því sem þegar hefur verið lagt í púkkið. Munurinn er sá að hér eru það ekki eigin peningar þeirra sem taka ákvarðanirnar. Það er almannafé sem liggur undir. Fossvogsbrúin er athyglisvert dæmi. Árið 2023 var rætt um að framkvæmdin myndi kosta um 6,1 milljarð króna. Samningar um brúarsmíðina, landfyllingar og sjóvarnir nema hins vegar samtals rúmlega 8,5 milljörðum króna. Endanlegur kostnaður liggur enn ekki fyrir. Og þetta er aðeins einn hluti fyrirhugaðs kerfis. Hvað gerist ef ekki næst samkomulag um fjármögnun og útfærslu næstu áfanga? Verður þá búið að verja milljörðum í framkvæmdir sem skila ekki því samgöngukerfi sem almenningi var lofað? Við fjárhættuspil getur maður staðið upp frá borðinu þegar peningarnir eru búnir. En hver stendur upp frá Borgarlínunni ef reikningurinn heldur áfram að hækka? Á þetta bara að reddast? Fangelsin – ný hús en hversu mörg ný rými? Á síðustu áratugum hafa verið reistar nýjar fangelsisbyggingar, en engu að síður er enn kvartað undan alvarlegum skorti á fangarýmum. Fangelsið á Hólmsheiði var opnað árið 2016 með 56 fangarýmum. Þegar það var tekið í notkun voru Hegningarhúsið við Skólavörðustíg og fangelsið í Kópavogi lögð niður. Nýju rýmin 56 voru því ekki öll hrein viðbót við þau sem fyrir voru. Það er auðvitað ágætt að fá nýtt fangelsi. En það væri enn ágætara ef fangarýmunum fjölgaði jafn myndarlega og byggingarkostnaðurinn. Ekki er verið að mæla með því að úreltu húsnæði sé haldið í notkun. Spurningin er hvort stjórnvöld hafi haft nægilega skýra langtímaáætlun um þörfina fyrir fangarými. Hólmsheiðarfangelsi er einnig dæmi um breyttar kostnaðaráætlanir. Árið 2013 var rætt um tæplega tveggja milljarða króna framkvæmdakostnað, en við opnun árið 2016 var greint frá um 2,7 milljarða króna heildarkostnaði. En það er fleira sem vekur athygli við nýtingu fangelsisins. Á Hólmsheiði hefur verið vistað fólk í tengslum við útlendingamál, meðal annars einstaklingar sem biðu brottvísunar og höfðu ekki hlotið fangelsisdóm fyrir refsivert brot. Hvernig stendur á því að stjórnvöld kvarta undan skorti á fangarýmum en finna samt ekki annað úrræði en að vista þar fólk sem bíður brottvísunar? Það er eitt að frelsissvipting geti átt sér lagastoð. Það er annað hvort fangelsi sé viðeigandi vistunarstaður fyrir fólk sem ekki hefur verið dæmt til fangelsisrefsingar. Hér er ekki aðeins um fjármuni að ræða heldur einnig mannúð, réttindi fólks og nýtingu húsnæðis sem reist hefur verið fyrir almannafé. Litla-Hraun – í þriðja sinn Á Litla-Hrauni stóð gamla fangelsið þegar ný fangelsisbygging var reist við hlið þess árið 1995. Nú, rúmum þrjátíu árum síðar, stendur til að reisa enn eitt fangelsið á sama svæði. Nú á enn og aftur, í þriðja sinn, að reisa fangelsi á Litla-Hrauni, að þessu sinni undir heitinu Stóra-Hraun. Áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga hefur verið kynntur um 17,8 milljarðar króna. Gamla fangelsið, nýbyggingin frá 1995 og nú Stóra-Hraun. Hversu oft þarf að byggja nýtt áður en stjórnvöld fara að hugsa til lengri tíma? Byggingin frá 1995 er aðeins rúmlega þrjátíu ára gömul, en nú er talið að eldra húsnæðið uppfylli ekki lengur kröfur samtímans. Var gert ráð fyrir nægilega löngum notkunartíma og möguleikum á að aðlaga bygginguna að breyttum kröfum? Eða var hönnuninni ábótavant frá upphafi? Hver bar ábyrgð á þeim forsendum sem hönnuðirnir unnu eftir? Hefur viðhaldi verið sinnt með fullnægjandi hætti? Og hefur verið sýnt fram á að endurbætur séu óhagkvæmari en nýbygging? Auðvitað breytast kröfur til öryggis og aðbúnaðar með tímanum. Það getur réttlætt nýtt húsnæði. En þá þurfa stjórnvöld að skýra hvers vegna bygging sem reist var fyrir aðeins þremur áratugum dugar ekki lengur. Hver verður heildarkostnaður Stóra-Hrauns þegar öllum áföngum er lokið? Og hversu mörg fangarými bætast raunverulega við þegar eldri rými hafa verið lögð niður? Á Kvíabryggju er rekið opið fangelsi þar sem áhersla er lögð á vinnu, nám og endurhæfingu. Ekki þurfa allir sem hljóta fangelsisdóm sömu öryggisumgjörð. Fyrir suma getur opnari afplánun verið viðeigandi úrræði. Enda eru ekki allir tilbúnir að stofna möguleikum sínum á endurhæfingu í hættu með því að strjúka og eiga yfir höfði sér afleiðingarnar. Það eru ekki allir hlutir leystir með fjáraustri og nýjum, flísalögðum byggingum. Hver tryggir að nýja byggingin verði ekki talin úrelt eftir önnur þrjátíu ár? Viðhaldið sem enginn sér Vegir, brýr, sjúkrahús og opinberar fasteignir þurfa stöðugt viðhald. Þegar því er frestað hverfur kostnaðurinn ekki. Hann getur þvert á móti orðið meiri. Sá sem rekur fasteignir getur ekki endalaust byggt ný hús á meðan þau eldri grotna niður. Ríkissjóður er engin undantekning. Nýbyggingar vekja athygli. Það er hægt að klippa á borða, halda ræður og láta taka myndir. Viðhald fær sjaldnast sömu umfjöllun, þótt það geti verið skynsamlegri ráðstöfun fjármuna. Ábyrgðin má ekki hverfa með kjörtímabilinu Þessi vinnubrögð eru ekki einkamál einnar ríkisstjórnar eða eins stjórnmálaflokks. Stórframkvæmdir hafa verið kynntar undir stjórn ólíkra flokka og stjórnarandstaðan þarf ekki síður að svara því hvaðan fjármunirnir eigi að koma þegar hún kallar eftir auknum útgjöldum. Áður en ráðist er í stórframkvæmd þarf að liggja fyrir hvað hún á að kosta, hvernig hún verður fjármögnuð og hver ber ábyrgð ef áætlanir standast ekki. Þegar framkvæmd lýkur þarf að bera lokareikninginn saman við upphaflegar forsendur, ekki aðeins síðustu samþykktu kostnaðaráætlunina. Annars lærir kerfið lítið af eigin reynslu. Við þurfum nýja innviði, góða heilbrigðisþjónustu, öruggar samgöngur, íþróttaaðstöðu og mannúðlegan aðbúnað í fangelsum. En við getum ekki gert allt í einu. Þegar vaxtagjöld ríkissjóðs eru áætluð um 425 milljónir króna á dag ætti hver ný milljarðaskuldbinding að kalla á alvarlega umræðu um nauðsyn hennar og fjármögnun. Það er ekki stórhugur að samþykkja framkvæmdir án þess að gera fulla grein fyrir því hver greiðir reikninginn. Stjórnmálamenn geta lofað nýjum mannvirkjum á hverju kjörtímabili. En þeir geta ekki lofað því að reikningurinn hverfi. Hann kemur alltaf. Og þá er spurningin ekki lengur hver fékk að klippa á borðann. Heldur hver situr uppi með skuldina. Höfundur er athafnamaður í fasteignarekstri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun