ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir og Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifa 16. október 2026 07:02 Grein sem birtist um daginn vakti athygli á mikilvægum punkti: næringargildi matvæla er ekki fasti. Það getur breyst eftir ýmsum þáttum, svo sem jarðvegi, áburðarnotkun, veðurskilyrðum, loftslagsbreytingum og ræktunaraðferðum. Því er sannarlega mikilvægt að fylgjast með því hvernig næringargildi matvæla þróast með tímanum og tryggja að upplýsingarnar sem við styðjumst við séu eins áreiðanlegar og hægt er. En hvað vitum við í raun um þessar breytingar? Hafa þær verið mældar og sýna niðurstöðurnar að næringargildi matvæla hafi almennt minnkað? Til að fá svör við þessum spurningum var leitað til sérfræðinga hjá Matís sem halda utan um íslenska gagnagrunninn um efnainnihald matvæla, ÍSGEM. ÍSGEM er mikilvægur gagnagrunnur sem inniheldur upplýsingar um efnainnihald fjölbreyttra matvæla, meðal annars um orku, prótein, fitu, kolvetni, vítamín og steinefni. Gagnagrunnurinn nýtist meðal annars við mat á næringargildi matvæla, útreikning á næringarinntöku og miðlun upplýsinga um samsetningu mataræðis. Matís sér um gagnagrunninn og vinnur að því að yfirfara og uppfæra upplýsingarnar eftir því sem ný gögn og mælingar liggja fyrir. Hvað vitum við um næringargildi matvæla? ÍSGEM var uppfærður árið 2025. Við uppfærsluna voru meðal annars skráð gögn úr nýlegum og eldri rannsóknum Matís, gögnin gæðametin og gerðar nýjar efnagreiningar á ýmsum matvælum, þar á meðal innlendu korni. Næringargildin í gagnagrunninum eru því ekki gamlar tölur sem hafa staðið óbreyttar í áratugi. Gögnin eru yfirfarin og uppfærð eftir því sem nýjar niðurstöður liggja fyrir. Í sumum tilfellum staðfestu nýjar mælingar eldri niðurstöður, en í öðrum komu ný mæligildi í stað fyrri. Tvö dæmi úr nýlegri vinnu Matís sýna hversu mikilvægt er að endurskoða upplýsingar reglulega. Útvatnaður saltfiskur reyndist til að mynda mun saltari en skráning í ÍSGEM hafði gefið til kynna og voru framleiðendur upplýstir um niðurstöðuna. Þá sýndu endurteknar joðmælingar á nýmjólk fjórfalt hærri styrk joðs en eldri mælingar höfðu gefið til kynna. Þessar niðurstöður sýna að mikilvægt er að mæla, sannreyna og uppfæra upplýsingar. Þær sýna hins vegar ekki að næringargildi matvæla hafi almennt minnkað. Þvert á móti staðfestu nýlegar mælingar á grænmeti til dæmis niðurstöður eldri mælinga á meginefnum, vítamínum og steinefnum. Þótt næringargildi breytist eru matvælin enn næringarrík Það er mikilvægt að greina á milli þess að styrkur tiltekins næringarefnis breytist og þess að matvæli missi almennt næringargildi sitt. Grænmeti, baunir og heilkorn eru dæmi um matvæli sem veita fjölbreytt næringarefni og önnur mikilvæg efni, meðal annars trefjar, vítamín, steinefni og ýmis lífvirk plöntuefni. Jafnvel þótt mælingar sýndu að styrkur ákveðins vítamíns eða steinefnis hefði minnkað lítillega í tiltekinni tegund grænmetis eða korns væri það ekki næg ástæða til að líta á matvælið sem næringarsnautt. Baunir eru til dæmis góð uppspretta trefja og próteina, og heilkorn veita trefjar og ýmis vítamín og steinefni. Grænmeti getur sömuleiðis lagt til fjölbreytt næringarefni og plöntuefni. Þessir eiginleikar hverfa ekki þótt efnainnihald geti verið breytilegt milli uppskera, tegunda eða ræktunarsvæða. Hvað þýðir þetta fyrir mataræðið okkar? Það er skynsamlegt að fylgjast með þróun næringargildis matvæla og tryggja að næringargagnagrunnar séu uppfærðir. Slík vinna hjálpar okkur að taka upplýstar ákvarðanir, meta næringarinntöku og greina þegar upplýsingar þarf að leiðrétta. Þetta er mikilvægt viðfangsefni sem snertir okkur öll sem neytendur og aukin umræða getur mögulega hjálpað til við að hægt sé að viðhalda áreiðanlegum gögnum, sem krefst meðal annars áframhaldandi fjármögnunar. Það er þó gagnlegast fyrir okkur öll að sú aukna umræða byggi á raunverulegum gögnum sem eru viðeigandi fyrir það matvælaumhverfi sem við búum við. Það er ekki ástæða til að draga þá ályktun að við getum ekki lengur treyst næringartöflum eða að við þurfum að endurmeta gildi grænmetis, bauna og heilkorns í mataræðinu. Fyrirliggjandi upplýsingar frá Matís, eins og þær birtast í þeim niðurstöðum sem hér hefur verið fjallað um, styðja ekki þá fullyrðingu að næringargildi grænmetis og korns hafi almennt hrakað. Niðurstöðurnar sýna fremur að nýjar mælingar geta bæði staðfest eldri gögn og leitt í ljós þegar þörf er á leiðréttingum. Við þurfum ekki að vita nákvæmlega hvert einasta milligramm af öllum næringarefnum í matnum okkar til að borða næringarríkt. Mikilvægara er að byggja mataræðið á fjölbreyttum matvælum og velja reglulega grænmeti, ávexti, baunir og heilkorn ásamt öðrum næringarríkum matvælum. Hvað skiptir mestu máli? Fæðuumhverfið sem við búum við í dag er nógu flókið fyrir, án þess að áhyggjur af innihaldi þeirra matvæla sem okkur skortir helst í mataræðið bætist þar ofan á. Orka okkar, tími og fjármagn væri betur varið í að fóta okkur í þeim fæðuvalsfrumskógi sem við búum við og nýta þá þekkingu sem þegar liggur fyrir til að stuðla að sem bestum fæðuvenjum. Sú þekking styður meðal annars við ríkulega neyslu á heilkorni, grænmeti og baunum, enda eru þessi matvæli ekki aðeins næringarrík heldur einnig heilsueflandi. Ávinningurinn nær langt út fyrir innihald þeirra af vítamínum og steinefnum og tengist meðal annars trefjum, fjölbreyttum lífvirkum efnum og samspili ólíkra næringarefna. Við skulum því halda áfram að njóta bauna, grænmetis og heilkorns í ríkum mæli og leyfa vísindunum að minna okkur á hversu góður grunnur þau eru að heilbrigðu mataræði. Höfundar eru Eydís Ylfa Erlendsdóttir, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá MATÍS, og Guðrún Nanna Egilsdóttir, næringarfræðingur og eigandi Næring og jafnvægi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Skoðun Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun