Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Sunna Arnardottir 14. október 2026 10:03 Sunna Arnardóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, gaf nýlega út rafbókina Know Your Rights, sem hægt er að hlaða niður ókeypis á vef hennar sunnaarnardottir.com. Réttindi launafólks snúast um mun meira en launaseðla og fjárhæðir. Þau eru einnig mikilvægur þáttur í því að skapa heilbrigt starfsumhverfi, setja mörk í samskiptum atvinnurekenda og starfsfólks og koma í veg fyrir að óheilbrigð hegðun fái að viðgangast. Þetta er meðal þess sem Sunna Arnardóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, fjallar um í nýrri rafbók sinni, Know Your Rights, sem hún hefur ákveðið að gera öllum aðgengilega án endurgjalds.
Bókin ber undirtitilinn Understanding Mishandling of Rights in the Employment Relationship og fjallar um réttindi starfsfólks, hvernig brotið getur verið gegn þeim og hvaða viðvörunarmerki geta bent til þess að eitthvað sé að í starfsumhverfinu. Sunna hefur starfað við mannauðsmál frá árinu 2009 og sérhæft sig í vinnustaðamenningu og skaðlegum hegðunarmynstrum á vinnustöðum. Hún hefur unnið með einstaklingum, starfsmannahópum og atvinnurekendum sem þurfa aðstoð við erfiðar aðstæður, auk þess að sinna stefnumótandi mannauðsstjórnun. Þá hefur hún einnig starfað sem markþjálfi og aðstoðað fólk við að efla sjálfstæði sitt og takast á við áskoranir í starfi og einkalífi. Misferli getur verið upphafið að alvarlegum vandamálum Að sögn Sunnu byggist bókin á reynslu hennar af málum þar sem starfsfólk hefur orðið fyrir misferli eða skaðlegri hegðun á vinnustað. Hún segir ákveðið mynstur hafa komið í ljós í þeim málum sem hún hefur fengið til umfjöllunar. Að mínu mati nær íslensk löggjöf ekki nægilega vel utan um þær birtingarmyndir ofbeldis sem starfsfólk getur orðið fyrir af hálfu atvinnurekenda. „Í gegnum árin hef ég tekið eftir því að öll þau mál sem ég hef fengið á mitt borð hefjast á svipaðan hátt, með brotum á réttindum starfsfólks sem síðar þróast yfir í alvarlegra ofbeldi,“ segir Sunna. Hún hefur sérhæft sig í að bera kennsl á og vinna með ofbeldi á vinnumarkaði, meðal annars þegar atvinnurekendur beita starfsfólk sitt óviðunandi aðferðum. Hún segir þessa sérhæfingu ekki alltaf hafa notið skilnings meðal atvinnurekenda og því hafi stór hluti ráðgjafarstarfa hennar beinst að starfsfólki sem leitar stuðnings vegna erfiðra aðstæðna. „Það getur verið erfitt að finna viðeigandi úrræði fyrir fólk sem lendir í slíkum aðstæðum. Að mínu mati nær íslensk löggjöf ekki nægilega vel utan um þær birtingarmyndir ofbeldis sem starfsfólk getur orðið fyrir af hálfu atvinnurekenda.“ Know Your Rights er unnin upp úr efni viðameiri bókar sem Sunna er að leggja lokahönd á. Sú bók fjallar um ofbeldi atvinnurekenda gagnvart starfsfólki, óháð því hvernig ofbeldið birtist eða hvar í heiminum það á sér stað. Mikilvægt að þekkja viðvörunarmerkin Í nýju rafbókinni er sjónum sérstaklega beint að fjárhagslegum réttindum starfsfólks, svo sem launum og rétti til fjarveru frá vinnu. Jafnframt er fjallað um hegðunarmynstur sem geta gefið vísbendingar um að réttindi séu ekki virt. Sunna segir mikilvægt að starfsfólk læri að þekkja þessi merki og geti brugðist við áður en vandamálin verða alvarleg. „Tilgangurinn er að kenna starfsfólki að hverju það eigi að leita og gera því kleift að bregðast sjálft við þegar misferli á sér stað. Ég vonast líka til að bókin stuðli að vitundarvakningu um mikilvægi þess að standa fast á réttindum sínum.“ Hún leggur áherslu á að slík réttindabarátta snúist ekki eingöngu um að fá rétta fjárhæð greidda í hverjum mánuði. „Þetta snýst ekki bara um að hækka krónutöluna á launaseðlinum heldur líka um að setja atvinnurekendum mörk gagnvart niðurrífandi hegðun sem starfsfólk getur orðið fyrir.“ Viðvörunarmerkin geti jafnvel komið fram löngu áður en bein réttindabrot eiga sér stað. „Starfsfólk þarf að vera vakandi fyrir þeirri hegðun sem er látin viðgangast á vinnustaðnum. Oft má sjá ákveðin merki í samskiptum samstarfsfólks áður en vandamálin birtast hjá stjórnendum eða fara að snúast um réttindi. Þess vegna er hægt að grípa inn í áður en aðstæður verða verulega skaðlegar.“ Atvinnurekendur hafa líka mikilvægan lærdóm af bókinni Þótt bókin sé fyrst og fremst skrifuð með hagsmuni starfsfólks í huga segir Sunna að atvinnurekendur geti einnig haft verulegt gagn af henni. Hún bendir á að stjórnendur sem brjóti gegn fjárhagslegum réttindum starfsfólks muni jafnframt misnota fjármuni fyrirtækisins í eigin þágu. Afleiðingarnar geti því náð langt út fyrir þann einstakling sem verður fyrir réttindabrotinu. „Það er mikilvægt að atvinnurekendur átti sig á alvarleika þessa. Fjárhagsvanda fyrirtækja má í sumum tilvikum rekja til þess að stjórnendur hafi misfarið með eignir fyrirtækisins. Síðan er starfsfólkið látið bera kostnaðinn þegar rétta þarf reksturinn af, til dæmis með launalækkunum eða uppsögnum.“ Það skiptir mig miklu máli að allir hafi sama aðgang að upplýsingum um réttindi sín. Sunna telur jafnframt að of þröngur skilningur ríki á því hvað réttindi starfsfólks fela raunverulega í sér. „Við horfum gjarnan á réttindi starfsfólks sem krónutölu. En fyrir starfsfólkið fela réttindin í sér svo miklu meira en það. Þau setja atvinnurekendum mörk, kalla á umhyggju og ábyrgð og eiga að stuðla að uppbyggjandi vinnustaðamenningu þar sem fólk getur sinnt störfum sínum án ótta eða óþæginda.“ Allir eiga að hafa aðgang að upplýsingunum Sunna tók þá ákvörðun að bjóða bókina ókeypis á vefsíðu sinni, sunnaarnardottir.com, svo fjárhagsleg staða fólks kæmi ekki í veg fyrir að það gæti kynnt sér efnið. Hún segir mikilvægt að fræðslan nái til allra hópa á íslenskum vinnumarkaði, jafnt Íslendinga sem innflytjenda, óháð starfsstétt eða tekjum. „Það skiptir mig miklu máli að allir hafi sama aðgang að upplýsingum um réttindi sín. Bæði þeir sem hafa efni á að kaupa bók og þeir sem þurfa að drýgja matinn úr eldhússkápunum síðustu daga mánaðarins til að komast af.“ Að hennar mati þurfi að skapa meiri meðvitund um að réttindi starfsfólks séu sameiginlegt hagsmunamál alls vinnumarkaðarins. „Við erum öll í sama báti og eigum öll að vera jöfn á vinnumarkaði, þótt starfstitlar og stéttir gefi stundum annað til kynna. Betri aðstæður á vinnumarkaði eru ekki eingöngu baráttumál þeirra sem betur standa fjárhagslega. Þetta snertir okkur öll.“ Rafbókina Know Your Rights má nálgast án endurgjalds á vefsíðunni sunnaarnardottir.com.
Mannauðsmál Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira