Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar 13. október 2026 07:02 Ég hef starfað í skólamálum í rúmlega tvo áratugi og á þeim tíma hef ég upplifað fjölmargar breytingar á íslensku skólakerfi. Sumar hafa reynst vel en aðrar ekki eins vel. Eitt hef ég þó lært á þessum árum. Ef við ætlum að ná raunverulegum árangri í skólastarfi þurfum við að vanda okkur, hlusta á fagfólkið, byggja ákvarðanir á þekkingu og gefa breytingum tíma til að skila árangri. Undanfarið hefur umræðan um íslensk skólamál verið nokkuð sérstök. Nýjar hugmyndir koma fram, breytingar eru boðaðar og gjarnan er talað með þeim hætti að nú eigi loksins að taka til hendinni. Það er í sjálfu sér gott að vilja breyta og bæta. Íslenskt skólakerfi er langt frá því að vera fullkomið og við eigum sannarlega að gera kröfur um framfarir, aukin gæði og betri námsárangur. Námsmat er meira en bókstafir og tölur Skoðum aðeins umræðuna um námsmat. Mennta- og barnamálaráðherra hefur boðað breytingar á einkunnagjöf við lok grunnskóla þar sem tölustafir koma í stað bókstafa. Markmiðið er meðal annars að gera námsmatið skýrara, samræmdara og auðskiljanlegra fyrir nemendur og foreldra. Það eru góð og gild markmið. Samkvæmt þeirri útfærslu sem nú hefur verið kynnt eiga lokaeinkunnir við brautskráningu úr grunnskóla að vera á bilinu 4 til 10. Einkunnin 7 merkir að nemandi hafi náð þeim hæfniviðmiðum sem lagt er upp með, einkunnir 5 og 6 lýsa hæfni sem er á góðri leið að þeim viðmiðum og einkunnir 8 til 10 sýna aukna dýpt, sjálfstæði og færni. Þarna er mikilvægt að staldra við. Við erum ekki að hverfa frá hæfnimiðuðu námsmati yfir í hefðbundið tölulegt einkunnakerfi. Námsmatið byggir áfram á hæfniviðmiðum aðalnámskrár og mati á því hvaða hæfni nemandinn hefur tileinkað sér. Breytingin er því að verulegu leyti fólgin í framsetningu og útfærslu niðurstaðna námsmatsins. Vissulega er einnig verið að gera breytingar á því hvernig lokaeinkunnir eru reiknaðar og birtar en grundvallarhugsunin um hæfni nemenda er áfram til staðar. En höfum við útskýrt nægilega vel hvaða vanda þessar breytingar eiga að leysa og hvernig við ætlum að meta árangurinn? Vandinn við námsmat hefur ekki eingöngu snúist um hvort einkunn sé birt með bókstaf eða tölustaf. Hann snýst líka um hvort námsmatið sé samræmt milli skóla, hvort nemendur og foreldrar skilji hvaða hæfni liggur að baki einkunninni og hvort niðurstöðurnar nýtist til að efla nám og framfarir. Þegar tveir nemendur fái sömu einkunn þurfum við að geta treyst því að sambærileg hæfni liggi þar að baki óháð því í hvaða skóla þeir stunda nám. Það er raunverulega verkefnið. Ég er alls ekki mótfallinn breytingum á námsmati. En þegar við breytum jafn mikilvægum þætti skólastarfs þurfum við að tryggja faglegan undirbúning, skýrar leiðbeiningar og raunverulegt samráð við kennara og skólastjórnendur. Ekki síst til að gæta þess að breytingarnar verði ekki fyrst og fremst enn eitt verkefnið sem leggst á starfsfólk skólanna án þess að skýrt sé hvaða ávinningi þær eigi að skila. Þessum undirbúningi er verulega ábótavant. Lengra skólaár er ekki sjálfkrafa betra skólaár Nú er einnig umræða um að lengja skólaárið og fjölga kennsludögum í grunnskólum. Það er sjálfsagt að taka þá umræðu og skoða hvort slík breyting geti skilað betri námsárangri. Samkvæmt lögum um grunnskóla skal árlegur starfstími nemenda í grunnskóla vera 180 skóladagar. Þegar rætt er um lengingu skólaársins þarf jafnframt að horfa til þess hversu miklum tíma nemendur verja í kennslu, hvernig sá tími er nýttur og hvaða árangri hann skilar. Ég hef lært að gæði kennslunnar, skipulag hennar, aðstæður nemenda og sá stuðningur sem þeir fá skiptir gríðarlegu máli. Við þurfum því að ræða lengingu skólaársins í samhengi við aðrar áskoranir skólakerfisins. Við þekkjum umræðuna um kennaraskort, fjölbreyttari nemendahópa, aukna þörf fyrir stuðning og sívaxandi verkefni sem skólunum er ætlað að sinna. Ef við ætlum að fjölga kennsludögum þurfum við að vita hverju það á að skila, hvernig það verður fjármagnað og hvernig við tryggjum að starfsfólk og nemendur hafi þær aðstæður sem nauðsynlegar eru til að breytingin skili árangri. Ábyrgð á námi barna liggur ekki eingöngu hjá skólanum Það er önnur hlið á umræðunni um lengd skólaársins sem mér finnst of lítið rædd. Í íslensku skólastarfi þekkjum við vel að börn eru tekin úr skóla á skólaárinu vegna fjölskylduferða, ferðalaga eða annarra viðburða. Stundum er um að ræða nokkra daga, stundum eina eða tvær vikur og jafnvel lengri tíma. Vetrarfrí eru lengd með viðbótarfrídögum, farið er til Tenerife eða annarra áfangastaða og börnin missa af kennslu á meðan. Við þetta bætast svo óhjákvæmileg veikindaforföll og ýmsar umgangspestir sem ganga yfir skólaárið. Ég skil vel að fjölskyldur vilji ferðast saman og njóta samveru. Slíkur tími getur verið bæði dýrmætur og lærdómsríkur. En við verðum líka að geta rætt opinskátt hvaða áhrif fjarvera frá skóla getur haft á nám barna, sérstaklega þegar hún verður löng eða endurtekin. Það er ákveðin mótsögn fólgin í því að ræða nauðsyn þess að fjölga kennsludögum á sama tíma og við lítum gjarnan á það sem sjálfsagðan hlut að börn missi úr skóla vegna ferða á skólatíma. Í 19. grein laga um grunnskóla nr. 91/2008 er skýrt kveðið á um ábyrgð foreldra á námi barna sinna. Þar segir meðal annars að foreldrar beri ábyrgð á námi barna sinna og beri að fylgjast með námsframvindu þeirra í samvinnu við börnin og kennara. Foreldrar bera jafnframt ábyrgð á því að börn þeirra sæki skóla. Þetta eru mikilvæg ákvæði sem minna okkur á að menntun barna er ekki eingöngu verkefni skólanna. Þegar foreldrar óska eftir leyfi fyrir börn sín á skólatíma þurfa þeir að vera meðvitaðir um ábyrgð sína á því að styðja við nám barnanna á meðan á fjarverunni stendur. Kennarar geta ekki endurtekið heilu kennsluvikurnar fyrir hvern og einn nemanda sem hefur verið í fríi. Þetta er ekki sagt til að gagnrýna fjölskyldur sem ferðast saman. Það er samt mikilvægt að horfa á heildarmyndina. Við getum ekki gert sífellt meiri kröfur til skólanna án þess að ræða um leið ábyrgð okkar allra. Gott samstarf heimila og skóla er ein mikilvægasta forsenda farsæls skólastarfs. Það samstarf þarf að byggjast á trausti, gagnkvæmri virðingu og sameiginlegum skilningi á því að nám og velferð barna er verkefni sem við berum öll ábyrgð á. Farsæld barna krefst meira en góðra fyrirheita Svo er það farsæld barna. Þar höfum við á undanförnum árum ráðist í umfangsmiklar og mikilvægar breytingar á þjónustu við börn og fjölskyldur. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sem tóku gildi árið 2022, byggjast á þeirri grundvallarhugsun að börn og fjölskyldur eigi að fá viðeigandi stuðning á réttum tíma og að þjónustukerfin vinni betur saman. Þetta er hugmyndafræði sem ég hef mikla trú á. Hún snýst um að sjá barnið, hlusta á fjölskylduna og bregðast við áður en vandinn verður of stór. Hún snýst líka um að tryggja að börn og fjölskyldur lendi ekki á milli kerfa þar sem hver vísar ábyrgðinni á annan. Sveitarfélög hafa lagt mikla vinnu í innleiðinguna. Þau hafa byggt upp þjónustu, ráðið starfsfólk, þróað verkferla og unnið að því að tengja betur saman skóla, félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustuaðila. Nú ríkir hins vegar óvissa um áframhaldandi fjármögnun innleiðingarinnar hjá sveitarfélögunum. Í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er ekki gert ráð fyrir áframhaldandi sérstöku framlagi til þeirra vegna innleiðingarinnar. Þótt áfram sé gert ráð fyrir fjármunum til annarra verkefna á sviði farsældar barna er mikilvægt að fá skýr svör um hvernig sveitarfélögin eiga að standa undir þeirri þjónustu og þeim verkefnum sem þau hafa verið að byggja upp. Við getum ekki ákveðið að ráðast í stórt samfélagslegt verkefni, lagt nýjar skyldur á sveitarfélögin og hvatt alla til samstarfs en síðan látið óvissu ríkja um fjármögnunina áður en innleiðingin hefur náð að festa sig almennilega í sessi. Það er ekki góð leið til að byggja upp trausta þjónustu. Ég hef séð í störfum mínum hversu mikilvægt það er að börn fái aðstoð snemma, að fagfólk geti unnið saman og að foreldrar þurfi ekki að berjast við kerfið til að fá þann stuðning sem börnin þeirra þurfa. Farsæld barna er ekki tímabundið átak. Um er að ræða langtímaverkefni sem krefst stöðugleika, skýrrar ábyrgðar og fjárfestingar. Tökum samtalið áður en við tökum ákvarðanirnar Kennarasamband Íslands hefur nú kallað eftir víðtæku samfélagslegu samtali um framtíð skólastarfs. Ég tek heilshugar undir það ákall. Við þurfum að ræða skólamál af alvöru og horfa lengra en til næstu breytingar á námsmati eða fjölda kennsludaga. Við þurfum sameiginlega framtíðarsýn um það hvernig skóla við viljum byggja upp og hvaða þekkingu, færni og gildi við viljum að börnin okkar hafi tileinkað sér þegar þau ljúka grunnskóla. Við þurfum að ræða hvernig við eflum læsi og stærðfræðifærni, hvernig við tryggjum vellíðan og félagslegan þroska, hvernig við styðjum við fjölbreyttar þarfir nemenda og hvernig við gerum kennarastarfið og önnur störf innan skólanna eftirsóknarverð. Við þurfum líka að ræða hvernig við styðjum betur við foreldra og hvernig við styrkjum samstarf heimila og skóla. Ég hef alla tíð haft mikla trú á íslensku skólastarfi og ekki síst því frábæra fólki sem þar starfar. Á hverjum degi fer fram ótrúlega mikilvægt starf í skólunum okkar. Þar er fólk sem leggur sig fram um að kenna, styðja, hvetja og skapa börnunum okkar góðar aðstæður til náms og þroska. Það fólk býr yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu sem þarf að nýta þegar ákvarðanir eru teknar um framtíð skólastarfs. Starfsfólk skólanna eiga ekki eingöngu að fá það hlutverk að innleiða ákvarðanir sem teknar hafa verið annars staðar. Starfsfólkið þarf að vera virkir þátttakendur í að móta þær. Við þurfum að hætta að nálgast skólamálin með einstökum útspilum og skammtímalausnum og horfa þess í stað til framtíðar með skýra sýn og samstöðu að leiðarljósi. Það kallar á raunverulegt samstarf ríkis, sveitarfélaga, starfsfólks skóla, foreldra og nemenda. Þetta snýst um börnin okkar, tækifæri þeirra og framtíð. Höfundur er skólastjóri Húsaskóla í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Mest lesið 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Sjá meira
Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun