Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar 12. október 2026 07:31 Það var mikilvæg stund þegar Johan Rockström, forstjóri Potsdam-stofnunarinnar og einn virtasti loftslagsvísindamaður heims, sté á svið Háskólabíós. Erindi hans fjallaði um svokölluð þolmörk jarðar – líkan sem mælir einfaldlega heilsufar plánetunnar okkar. Boðskapurinn var jafn skýr og hann var sláandi: Af níu lífsnauðsynlegum þolmörkum fyrir framtíð mannkyns og heilsu jarðar höfum við nú þegar rofið sjö. Við erum í blindflugi út í óvissuna. Nýjasta heilbrigðisúttekt jarðarinnar (Planetary Health Check, Potsdam Institute for Climate Impact Research, 2026) sýnir varúðarljósin. Við erum komin langt út fyrir það örugga svæði sem gerði mannkyninu kleift að blómstra í árþúsundir. Til að skilja alvöruna þurfum við að horfa aðeins aftur í tímann. Síðustu 10.000 árin hefur jörðin notið ótrúlegs stöðugleika. Hitastigið hefur haldist svo til óbreytt, sem gaf okkur landbúnað, það sem við köllum siðmenningu og að lokum nútímasamfélag. Þegar ríki heims settu sér það markmið í París 2015 að halda hlýnun innan við 1,5 gráður miðað við iðnbyltingu, þá var það ekki handahófskennd pólitísk tala. Það eru hörð vísindaleg mörk. Bjargbrúnin. Vandinn er sá að við erum á fleygiferð fram af brúninni. Að óbreyttu förum við yfir þessi mörk á næstu þremur til fjórum árum. Margir binda vonir við að við getum leyft okkur að fara aðeins yfir strikið núna – skotið yfir markið – og kælt svo aftur síðar með aðstoð nýrrar tækni sem sýgur kolefni úr andrúmsloftinu. Rockström er ekki trúaður á það. Þessi framtíðartækni er of dýr, of hægvirk og of óviss til að við getum teflt framtíð okkar í tvísýnu á grunni hennar. Nálæg framtíð er það eina sem við höfum og þá gildir í meginatriðum bara eitt: Draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, þótt annað komi vissulega til líka. Náttúran hefur hingað til verið okkar besti bandamaður. Höfin og stóru skógarnir hafa gleypt í sig stóran hluta af þeim gróðurhúsalofttegundum sem við höfum blásið út. En nú sýna mælingar að þessi mikilvægu kerfi eru á þrotmörkum. Ef við höldum áfram á sömu braut gætu þessi verndarkerfi hrunið eitt af öðru. Amasón-skógurinn gæti þornað upp að stórum hluta. Ísbreiður Grænlands gætu bráðnað óafturkallanlega, hækkað yfirborð sjávar og hætt að endurvarpa geislum sólar út í geiminn eins og nú sem eins konar varnarskjöldur. Og það sem snertir okkur á Íslandi hvað mest: Hlýja hafstraumakerfið okkar í Norður-Atlantshafi gæti raskast verulega. Kerfin virka nefnilega ekki í einangrun; ef eitt hrynur dregur það þrótt úr öðrum. Matvælaframleiðslan spilar hér gríðarstórt hlutverk. Hún er stærsti einstaki orsakavaldur þessarar krísu. Við munum ekki leysa loftslagsvandann nema við gjörbreytum því hvernig við framleiðum mat fyrir jarðarbúa, stöðvum sóun og bætum neysluvenjur. Við búum við ákveðna þversögn. Aldrei hefur verið framleitt jafn mikið af hreinni orku, hvort sem það er með sól, vindi eða vatni. En þessi hreina orka er að mestu leyti bara til að mæta nýrri og aukinni orkuþörf heimsins, í stað þess að koma í staðinn fyrir olíu og kol. Í staðinn fyrir orkuskipti höfum við stöðugt vaxandi orkuhungur. Notkun jarðefnaeldsneytis heldur áfram að aukast þegar hún þarf að dragast saman – og hætta. Í lok fyrirlestursins var Rockström spurður hvaðan við gætum helst sótt von á svona stundum. Svar hans var yfirvegað. Hann benti á að vísindin hefðu þegar unnið umræðuna. Þeir sem enn afneita vandanum eru eins og deyjandi risaeðlur. Kannanir sýna að meirihluti almennings, bæði í Evrópu og víðar, jafnvel í Bandaríkjunum, skilur vandann og kallar eftir aðgerðum. Kvíðavænleg og misvísandi skilaboð mega ekki blekkja okkur til að halda að ekkert sé hægt að gera. Staðreyndin er sú að tæknilegu og efnahagslegu lausnirnar eru þegar til. Við vitum hvernig hringrásarhagkerfi virkar, við kunnum að framleiða hreina orku og við getum stundað endurnýjandi landbúnað. Nú blasir við upphafið að endalokum jarðefnaeldsneytis. Ef við ákveðum það. Áskorun okkar kynslóðar er ekki að finna upp hjólið. Hún felst í því að innleiða lausnirnar nógu hratt til að vinna kapphlaupið við tímann. Valið er okkar: Að gefast upp eða að stíga fram og nýta þær lausnir sem við þekkjum nú þegar. Höfundur skrifaði bókina Heimurinn eins og hann er þar sem fjallað er ítarlega um þessi málefni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Jón Hafstein Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Sjá meira
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar