Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Árni Sæberg skrifar 23. september 2026 16:29 Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banki, sem vill að 23 lóðir verði seldar á nauðungarsölu. Vísir/Vilhelm Arion banki hefur farið þess á leit við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu að 23 lóðir í eigu Magnúsar Péturs Hjaltested, ábúanda jarðarinnar Vatnsenda, verði seldar á nauðungarsölu til fullnustu kröfu um greiðslu 430 milljóna króna.
Þetta kemur fram í auglýsingu sýslumanns í Lögbirtingablaðinu í dag. Þar segir að 23 beiðnir um nauðungarsölur til fullnustu kröfu um peningagreiðslu verði teknar fyrir á skrifstofu embættisins næstkomandi þriðjudag, hafi þær ekki áður verið felldar niður. Eignirnar sem um ræður eru eftirfarandi: Vatnsendablettur 11, Vatnsendablettur 170, Vatnsendablettur 201, Vatnsendablettur 21, Vatnsendablettur 225, Vatnsendablettur 231, Vatnsendablettur 237, Vatnsendablettur 237A, Vatnsendablettur 263, Vatnsendablettur 270, Vatnsendablettur 286, Vatnsendablettur 306, Vatnsendablettur 3A, Vatnsendablettur 43, Vatnsendablettur 43, Vatnsendablettur 446, Vatnsendablettur 51A, Vatnsendablettur 64, Vatnsendablettur 65, Vatnsendablettur 73, Vatnsendablettur 75, Vatnsendablettur 9, Vatnsendablettur 93. Samkvæmt auglýsingunni er gerðarþoli allra gerðarbeiðna Magnús Pétur Hjaltested, sonur Þorsteins Hjaltested heitins á Vatnsenda. Fjárhæð krafna sem undir eru í öllum beiðnum nemur rúmlega 430 milljónum króna. Fékk ekki 1,4 milljarða frá bænum Deilur um jörðina Vatnsenda hafa ítrekað ratað í fjölmiðla undanfarna áratugi enda staðið yfir í rúmlega fimmtíu ár og leitt af sér fjöldan allan af dómum, þar af marga sem taldir eru meðal þeirra mikilvægustu í íslenskum eignarrétti. Nýjasti angi málsins snýr að máli sem Þorsteinn heitinn höfðaði árið 2018 á hendur Kópavogsbæ, þar sem hann krafðist greiðslu 5,6 milljarða króna vegna ágreinings um sátt um eignarnám á hluta Vatnsendajarðarinnar frá árinu 2007. Héraðsdómur dæmdi Magnúsi Pétri 1,4 milljarða króna í málinu árið 2023. Landsréttur sneri þeim dómi í febrúar í fyrra og í apríl sama ár hafnaði Hæstiréttur beiðni Magnúsar Péturs um áfrýjunarleyfi. Með því var þeim anga málsins endanlega lokið. Hæstiréttur hafnaði beiðni hans á grundvelli þess að krafa hans um rúmlega 1,7 milljarða króna úr hendi Kópavogsbæjar varðaði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans. Ábúandi en ekki formlegur eigandi Sem áður segir á Vatnsendamálið sér langa og flókna sögu en í stuttu máli á það rætur sínar að rekja aftur til ársins 1938 þegar föðurbróðir Sigurðar Hjaltested arfleiddi hann að jörðinni Vatnsenda með ritun erfðaskrár. Samkvæmt ákvæðum erfðarskrárinnar skyldi jörðin að Sigurði látnum ganga að erfðum til elsta sonar hans og svo til niðja hans í beinan karllegg. Magnús, elsti sonur Sigurðar, fékk svo umráða- og ábúandarétt yfir jörðinni þegar Sigurður lést árið 1966. Önnur börn Sigurðar fengu ekki afnot af jörðinni og afkomendur Magnúsar, sem voru Þorsteinn Hjaltested meðal annarra, fengu svo jörðina í sínar hendur og greiðslur frá Kópavogsbæ vegna byggingarlands. Með dómi Hæstaréttar árið 2013 var staðfest að Magnús hefði eingöngu haft búseturétt á jörðinni en ekki beinan eignarrétt. Árið 2023 komst Hæstiréttur svo að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að hafa átt beinan eignarrétt að landinu ætti dánarbú Sigurðar engan rétt á eignarnámsbótum þar sem beinn eignarréttur Vatnsenda, sem Sigurður hefði hlotið með erfðaskránni frá 1938, hefði verið formlegs eðlis, án fjárgildis og því verðlaus í höndum rétthafans frá upphafi.
Deilur um Vatnsendaland Arion banki Jarða- og lóðamál Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira