„Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Starri Freyr Jónsson skrifar 17. september 2026 10:42 „Við höfum alltaf haft gaman af því að vinna verðlaun fyrir verkefnin okkar en það er líka frábært að fá verðlaun fyrir að reka fyrirtækið vel,“ segir Anna Signý Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Kolibri. Mynd/Vilhelm. Það er alltaf ánægjulegt að komast í góðan félagsskap og kannski sérstaklega þegar maður hefur þurft að vinna sig aftur inn í hann. Kolibri er á ný komið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki eftir nokkurra ára fjarveru en fyrirtækið hafði áður verið á listanum fjögur ár í röð, frá 2019 til 2022.
Anna Signý Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Kolibri, segir endurkomuna fyrst og fremst vera góða staðfestingu á þeirri vinnu sem átt hefur sér stað innan fyrirtækisins undanfarin ár. „Við höfum lagt mikla áherslu á að byggja upp heilbrigðan og sjálfbæran rekstur og það er ánægjulegt að sjá þá vinnu endurspeglast með þessum hætti,“ segir hún. Að hennar sögn hefur viðurkenningin ólíka en mikilvæga þýðingu fyrir þá sem tengjast Kolibri. Fyrir eigendur sé hún staðfesting á styrk og stöðugleika fyrirtækisins, fyrir starfsfólkið sé hún afrakstur sameiginlegrar vinnu og fyrir viðskiptavini ákveðinn gæðastimpill. „Við höfum alltaf haft gaman af því að vinna verðlaun fyrir verkefnin okkar en það er líka frábært að fá verðlaun fyrir að reka fyrirtækið vel. Besta staðan er auðvitað að geta gert bæði,“ segir Anna Signý. Mynd/Axel Sigurðarson. Markmiðið ekki að komast á listann Þótt Kolibri sé nú aftur komið í hóp Framúrskarandi fyrirtækja segir Anna Signý að stjórnendur hafi ekki sett það sérstaklega á stefnuskrána að komast þangað. „Markmiðið var miklu frekar að reka fyrirtækið þannig að það ætti heima á listanum.“ Undanfarin ár hefur meðal annars verið lögð áhersla á að styrkja reksturinn, fylgjast vel með lykiltölum og nýta tíma og fjármuni vel. Það þurfi þó að gera án þess að fórna öðrum mikilvægum þáttum. „Áskorunin er að gera það án þess að fórna því sem skiptir okkur mestu máli: gæðum verkefna, góðu vinnuumhverfi og faglegum metnaði.“ Sterkur rekstur snúist heldur ekki eingöngu um að tölurnar líti vel út í lok árs. Hann skapi svigrúm til að fjárfesta í starfsfólki, prófa nýja hluti og skila betri vinnu fyrir viðskiptavini. „Við viljum byggja fyrirtæki sem þolir sveiflur og getur þróast og vaxið á heilbrigðan hátt. Að komast aftur á listann er því ekki endapunkturinn eða markmiðið sjálft, heldur góð staðfesting á því að sú vinna sé að skila árangri.“ Stefnan sé því ekki beinlínis að elta sæti á listanum á hverju ári heldur halda áfram að reka fyrirtæki sem eigi þar erindi. Mynd/Axel Sigurðarson. Gott fólk þarf svigrúm Kolibri starfar í skapandi þekkingargeira þar sem breytingar eru hraðar og samkeppnin mikil. Anna Signý segir lykilatriði að skapa umhverfi þar sem öflugt fólk geti unnið framúrskarandi vinnu. „Við viljum hafa skýra sýn á hvert við erum að fara og reka fyrirtækið vel, en á sama tíma gefa fólki traust og svigrúm til að hafa áhrif á hvernig við komumst þangað.“ Forvitni sé sömuleiðis mikilvæg. Fyrirtæki í þessum geira þurfi stöðugt að prófa nýja hluti og vera tilbúin að endurskoða vinnubrögð sín. Grunnurinn breytist þó ekki: að vinna góð verkefni, skapa árangur fyrir viðskiptavini og byggja upp vinnustað þar sem öflugt fólk vill starfa. „Þegar þetta fer saman - gott fólk, metnaðarfull verkefni og heilbrigður rekstur, þá erum við á góðum stað.“ Gervigreindin breytir leiknum Fram undan er annasamur vetur hjá Kolibri og Anna Signý segir stór og spennandi verkefni þegar komin í gang. Mikil tækifæri felist meðal annars í hraðri þróun gervigreindar og áhrifum hennar á stafræna þjónustu. „Með tilkomu gervigreindar getum við hreyft okkur hraðar en áður, dregið úr óvissu og skilað sama eða meiri árangri með lægri tilkostnaði fyrir viðskiptavini.“ Þróunin geri mannlega sköpunargáfu þó ekki síður mikilvæga. Hreinar gervigreindarlausnir geti orðið einsleitar og byggt um of á því sem þegar hefur verið gert. „Þess vegna finnst okkur enn mikilvægara en nokkru sinni fyrr að halda í mannlega sköpunargáfu og sérsniðna hönnun. Við viljum skapa vel hannaðar lausnir sem leysa réttu vandamálin, eru notendavænar og vekja jákvætt umtal. Það er það sem skapar raunverulegt virði fyrir okkar viðskiptavini.“ Næsti áfangi er svo stóri viðburðurinn í Hörpu 28. október, þegar heildarlistinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki verður kynntur. Þar verður tilefni til að gera aðeins meira en að rýna í lykiltölurnar. „Það verður spennandi að sjá og hitta fyrirtækin sem munu mæta á viðburðinn. Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki,“ segir Anna Signý. Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Tengdar fréttir Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Það er ekki sjálfgefið að reka öflugt fyrirtæki í litlu samfélagi úti á landi. Hjá fiskvinnslunni Drangi á Drangsnesi hefur þó tekist að byggja upp traustan rekstur og nú er fyrirtækið komið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki sjötta árið í röð. 18. september 2026 10:13 Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira
Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Það er ekki sjálfgefið að reka öflugt fyrirtæki í litlu samfélagi úti á landi. Hjá fiskvinnslunni Drangi á Drangsnesi hefur þó tekist að byggja upp traustan rekstur og nú er fyrirtækið komið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki sjötta árið í röð. 18. september 2026 10:13