Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Bjarki Sigurðsson skrifar 17. september 2026 08:30 Ragnar Ómarsson er formaður Matsmannafélags Íslands. Vísir Formaður Matsmannafélags Íslands segir þörf á að ástandsskoðanir liggi fyrir þegar einstaklingar kaupa sér fasteign. Lítið traust sé á fasteignamarkaði og góð ástæða fyrir því en auðvelt að laga ástandið.
Seinna í dag fer fram opna málþingið Upplýsingagjöf og ástandsmat vegna sölu fasteigna á vegum Matsmannafélags Íslands (MFÍ). Fundurinn fer fram í Sykursal Grósku og hefst klukkan 13. Almenningur hafi ekki þekkinguna Ragnar Ómarsson, formaður MFÍ, heldur erindið Traust á fasteignamarkaði. Í samtali við fréttastofu segir hann almenning ekki hafa þekkinguna til að geta lýst ástandi eigna sem það er að kaupa eða selja, enda ekki atvinnufólk á markaði. „Þetta er ekki eins og að ganga inn í verslun og kaupa sér þvottavél. Ef þvottavélin bilar eða fer ekki í gang strax, þá geturðu bara skilað henni og fengið aðra í staðinn eða endurgreitt,“ segir Ragnar en skoðunarskylda er á kaupendum. Skylda í Noregi Seljendur fái oft einhvers konar spurningalista í hendurnar þar sem þeir merkja við upplýsingar um íbúðina. „En síðan verður hann að standa við það sem hann festir á blað. Hann verður að standa við það ef eitthvað kemur upp á. Þannig að það er ákveðin tortryggni sem ríkir í fasteignakaupum á markaðnum,“ segir Ragnar. Í Noregi sé skylda að fá fagaðila að borðinu til að meta raunverulegt ástand eignar. Um tíma var það algengt hér á landi að fólk keypti ekki íbúð nema að ástandsskoða hana fyrst. „Og þar með í rauninni að leggja grunninn að því hvaða verði hún ætti að fara á,“ segir Ragnar. Skökk samkeppni Gallinn við að væntanlegir kaupendur þurfi sjálfir að bóka matsmann á svæðið er að þá liggja ekki sömu upplýsingarnar fyrir alla. Ef hann myndi uppgötva einhverja vankanta þýðir það ekki að þær upplýsingar berist til annarra sem hafa áhuga á eigninni. „Og þar með skekkist í raun og veru samkeppnin, þar sem einn aðilinn býr að meiri upplýsingum heldur en annar. Þetta er í raun og veru grundvallaratriði. Það er að fá stöðuna þannig þegar kaupin eiga sér stað að allir sem gera tilboð hafi sömu upplýsingarnar sem þeir geta byggt tilboð sitt á. Að það liggi fyrir staðfest álit eða mat sérfróðs aðila á því hvert ástand eignarinnar sé og hver sé líklegur kostnaður við það að færa eignina upp í viðunandi horf ef hún er það ekki,“ segir Ragnar. Gríðarlegar fjárhæðir Aðspurður hvert tilefni málþingsins sé segir Ragnar að fyrir tveimur árum hafi starfshópur skilað þinginu skýrslu, meðal annars um ástandsskoðanir vegna sölu fasteigna. Þar er tímasett að unnið verði að áætlun um að ástandsskoðanir liggi fyrir við kaup á árunum 2026 til 2028. Hins vegar sjái félagið ekki mikla hreyfingu. „Við erum að tala um veruleg verðmæti sem flytjast á milli einstaklinga. Heildarverðmætin í fasteignaviðskiptum eru í tugum milljarða á hverju ári þannig að þetta eru stórar fjárhæðir, mikilvægar fjárfestingar fyrir einstaklinga. Þeir standa frammi fyrir því að binda sig við ákveðna fasteign,“ segir Ragnar.
Fasteignamarkaður Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira