„Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 19. september 2026 10:01 Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, dansar og syngur meira en hún taldi sjálf: Come On Eileen ekki síst! Þrjá morgna í viku nýtur hún þess að labba smá hring í Fossvogs- eða Elliðarárdalnum á morgnana með hundinum Vála. Vísir/Anton Brink Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég væri mjög til í að segja að ég vakni klukkan sex og fari í ræktina en ég á það til að vera nátthrafn. Það helgast þessa dagana þó helst af því að yngsta barnið mitt var að byrja í menntaskóla og menntskólalífið er það skemmtilegt að hann á það til að koma seint heim og ég vil vera vakandi þegar hann kemur heim, þá tekur yfirleitt við skemmtilegt spjall. Þannig að ég stilli klukkuna á klukkan sjö en viðurkenni að ég sýni mér smá mildi ef ég hef sofnað eftir miðnætti og ýti á snooze-takkann. Sumir myndu mögulega kalla þessa mildi að vera haugur en ég kýs að horfa á þetta jákvæðum augum.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég hef komið mér upp ýmsum venjum sem sumum finnst skrýtnar en þær virka vel fyrir mig og hjálpa mér að mæta yfirveguð í vinnuna. Þar sem flestir morgnar byrja með viðskiptavinum finnst mér ekki í boði að mæta tætt og illa vöknuð. Ég leggst með lappir upp á vegg og hugleiði með hugleiðslutónum úr Calm-appinu í 10 mínútur. Svo tek ég 10-20 mínútna hreyfiflæði eða léttar pilatesæfingar við vegg undir stjórn Yo-Go-appsins. Nú finnst mér ég hljóma eins og einhver lífsstílsráðgjafi, sem ég er alls ekki, ég geri þetta meira af illri nauðsyn og oft og tíðum hef ég ekki tíma fyrir aðra sjálfsrækt yfir daginn. Ég hleyp svo á neðri hæðina og fullvissa mig um að krakkarnir séu komnir á fætur, gef hundi og ketti að borða og fæ mér kefir með berjum og múslí og ef tími er til fæ ég mér Matcha-te sem ég lærði að hella upp á þegar fjölskyldan ferðaðist til Japan fyrir nokkrum árum. Ég hef aldrei getað drukkið kaffi en finnst mjög notalegt að eiga smá morgunrútínu með heitum drykk eins og kaffifólkið sem ég hef oft öfundað. Ég og eldri börnin skiptumst á að viðra hundinn á morgnana og þrisvar í viku fer ég stuttan hring með hundinn Vála og nýt þess að labba í rólegu og fallegu umhverfi í Fossvogs- eða Elliðaárdalnum.“ Hvaða lag fær þig alltaf til að hækka í botn og syngja hástöfum ein? Sko, ég dansa meira en ég syng, eða svo, hélt ég. Spurningin gæti frekar verið hvaða lag fær þig ekki til að dansa. En ég spurði krakkana og þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með og dansaði við næstum allt. En svo minntu þau mig á ákveðið lag sem ég hækka alltaf í og stundum óþarflega mikið og það er Come On Eileen með Dexys Midnight Runners.“ Guðríður öfundar stundum fólk sem drekkur kaffi, er sjálf te-manneskja og notar Outlook Calender mest fyrir sitt skipulag. Það sem ekki er skráð í Outlook er óöruggt að verði af yfir höfuð. Planner og Trello er notað fyrir samvinnuverkefni með öðrum. Vísir/Anton Brink Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Vinnan mín er gríðarlega fjölbreytt og enginn dagur eins. Ég vinn með nokkrum viðskiptavinum sem mannauðsstjóri til leigu eða bakhjarl í mannauðsmálum og á þá fasta daga í hverri viku sem ég er hjá þeim. Þess á milli sinni ég ýmsum verkefnum í mannauðs- og stjórnunarráðgjöf, kennslu, teymis- og markþjálfun og í raun öllu sem getur stuðlað að heilbrigðri og árangursríkri vinnustaðarmenningu. Ég er líka kjörræðismaður Perú og sendiherra Perú og konan hans eru í heimsókn þessa dagana og taka meðal annars þátt í Suður-Amerískri kvikmyndahátíð sem stendur yfir í Regnboganum. Ég er þeim innan handar varðandi tengingar við íslensk fyrirtæki og opinbera aðila og fer svo í bíó með þeim á kvöldin.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Outlook calendar er minn helsti aðstoðarmaður. Ég hef reynt einhver önnur tæki og tól en hjá mér fer allt í Outlook og ef það er ekki þar er ólíklegt að það gerist. Í samvinnu við aðra nota ég Planner eða Trello eða þá tækni sem viðkomandi viðskiptavinur kýs að nota og miðaldra kona getur mögulega tileinkað sér.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Markmiðið er að fara að sofa fyrir klukkan ellefu en það tekst of sjaldan þessa dagana og miðnætti væri heiðarlegra svar í bili.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 12. september 2026 10:03 „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni. 27. júní 2026 10:01 Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara. 20. júní 2026 10:02 Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. 13. júní 2026 10:00 Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna. 6. júní 2026 10:00 Mest lesið Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 12. september 2026 10:03
„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni. 27. júní 2026 10:01
Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara. 20. júní 2026 10:02
Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. 13. júní 2026 10:00
Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna. 6. júní 2026 10:00