FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2026 19:07 Gianni Infantino fékk ekki að selja HM en er staðráðinn í að halda áfram sem forseti FIFA. Getty/Chris Brunskill Stríðið á milli FIFA og UEFA, eftir áætlanir Gianni Infantino um að selja hlut í HM í fótbolta til einkaaðila, heldur áfram. FIFA sakar nú UEFA um „ófrægingarherferð“ gegn FIFA-forsetanum og svarar mögulegri kæru UEFA af hörku.
Í síðustu viku bárust fréttir af því að lögfræðingar UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, hefðu krafist aðgangs að sönnunargögnum í Bandaríkjunum með það í huga að höfða mál gegn Infantino í Sviss, þar sem höfuðstöðvar FIFA eru staðsettar. Í skjölum lögfræðinganna var Infantino sakaður um glæpsamlega hegðun með því að hafa ætlað að selja hlut í HM á undirverði og hagnast á því sjálfur. Núna hefur FIFA brugðist við og krafist þess, samkvæmt BBC og The Athletic, að beiðni UEFA um aðgang að sönnunargögnum og skjölum í Bandaríkjunum verði hafnað fyrir lok þessa mánaðar. FIFA segir að áætlun Infantino, sem hann dró til baka, hafi „aðeins verið tillaga“ sem aldrei hefði orðið að veruleika nema með samþykki meirihluta aðildarsambandanna 211. „Í stað þess að taka þátt í þessu lýðræðislega ferli sendi UEFA frá sér fréttatilkynningu – upphafið að margra vikna ófrægingarherferð gegn FIFA og forystu þess,“ segir í kröfu FIFA til bandarískra dómstóla. Fjöldi knattspyrnusambanda, þar á meðal KSÍ, hefur á undanförnum vikum lýst yfir vantrausti á Infantino. Hann hefur þó ekki sýnt á sér neitt fararsnið og virðist stefna á að halda áfram sem forseti FIFA en næstu forsetakosningar verða á þingi sambandsins þann 17. mars á næsta ári.
UEFA FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Sjá meira