Þegar sorgin fær reikning frá hinu opinbera Ragnheiður Helga Skúladóttir skrifar 2. september 2026 18:02 Móðir mín missti eiginmann sinn í janúar 2025. Með andláti hans missti hún ekki aðeins lífsförunaut sinn heldur gjörbreyttust aðstæður hennar og allt hennar daglega líf. Áður en hún náði að fóta sig í nýjum veruleika fór hins vegar af stað ferli: kröfur, endurreikningar og leiðréttingar frá opinberum stofnunum. Tryggingastofnun. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Skatturinn. Það er næstum eins og hið opinbera fái skotleyfi á þann sem eftir lifir. Nýjasta krafan kemur frá Skattinum vegna notkunar á persónuafslætti sem móðir mín fékk eftir andlát eiginmanns síns en nýta má persónuafslátt maka í 8 mánuði eftir andlát. Í bréfi Skattsins sem birtist inni á island.is kemur skýrt fram að mistök hafi átt sér stað hjá stofnuninni. Móðir mín hafði enga aðkomu að útreikningunum, enga vitneskju um mistökin og enga ástæðu til að ætla að opinber stofnun hefði reiknað rangt. Samt á hún að taka afleiðingunum. Nú, rúmu einu og hálfu ári eftir andlátið og eftir að dánarbúinu hefur verið lokað, er hún krafin um endurgreiðslu vegna mistaka sem Skatturinn sjálfur viðurkennir að hafa gert. Móðir mín er áttræð og eins og margir á hennar aldri á hún ekki auðvelt með að rata um rafræna stjórnsýslu. Hefði enginn aðstandandi fylgst með fyrir hana er óvíst hvenær hún hefði yfirleitt orðið vör við kröfuna fyrr en henni var slengt inn á heimabankann. Mér hefur skilist að fleiri sem misstu maka árið 2025 hafi lent í sambærilegu. Ef það er rétt er ekki um einstakt mál að ræða heldur mistök sem kunna að hafa bitnað á hópi fólks á einu viðkvæmasta tímabili lífs þess. En hver ber ábyrgðina þegar opinber stofnun reiknar rangt? Svarið virðist vera að einstaklingurinn borgar. Stofnunin viðurkennir mistökin. Stofnunin leiðréttir mistökin. En einstaklingurinn fær reikninginn. Þetta er ekki sanngjörn ábyrgðarskipting. Þetta snýst heldur ekki aðeins um eina endurkröfu frá Skattinum. Þegar fólk missir maka þarf það að takast á við ótal stofnanir og kerfi. Tryggingastofnun endurreiknar greiðslur. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun endurskoðar húsnæðisbætur. Skatturinn leiðréttir skatta og persónuafslátt. Hver stofnun horfir á sinn afmarkaða hluta en enginn virðist sjá manneskjuna sem stendur í miðjum missi. Þetta eru ekki bara kennitölur, málanúmer og tölur í Excel-skjali. Þetta er fólk í sorg. Það er auðvelt fyrir stofnun að segja að reglurnar séu skýrar og kerfið heimili ekki annað. En stjórnsýsla á ekki aðeins að vera formlega rétt. Hún á einnig að vera sanngjörn, vönduð og byggð á meðalhófi. Það hlýtur að skipta máli hver gerði mistökin. Hvort viðkomandi tók við greiðslum í góðri trú og hvort hann gat með nokkru móti vitað að útreikningarnir væru rangir. Ég er ekki að halda því fram að aldrei megi leiðrétta rangar greiðslur. Ég er að spyrja hvort það sé réttlátt að öll áhættan af mistökum opinberra stofnana sé lögð á einstaklinginn - jafnvel þegar stofnunin viðurkennir sjálf að mistökin séu hennar. Hvaða ábyrgð ber stofnun sem gerir mistök ef afleiðingarnar lenda alltaf hjá borgaranum? Hvar er sveigjanleikinn? Hvar er meðalhófið? Og hvar er mannlegi þátturinn? Við andlát maka þarf fólk að takast á við sorg, einmanaleika og gjörbreytt líf. Á sama tíma þarf það að ganga frá dánarbúi, húsnæðismálum, lífeyrisréttindum, sköttum og ótal öðrum atriðum. Kerfin tala illa saman og eftirlifandi maki þarf sjálfur að hlaupa á milli stofnana, svara kröfum og reyna að skilja flókna útreikninga. Það er ekki boðleg þjónusta við fólk í sorg. Opinberar stofnanir eiga ekki að gera ráð fyrir því að allir geti skilið flókna útreikninga eða vaktað rafræn pósthólf af fullkomnu öryggi. Þær eiga ekki heldur að geta skýlt sér á bak við kerfi og reglur þegar þeirra eigin framkvæmd bregst. Ég kalla eftir því að mál þeirra sem misstu maka árið 2025 og fengu ranglega reiknaðan persónuafslátt verði skoðuð í heild sinni. Upplýsa þarf hversu mörg mál þetta eru, hvernig mistökin urðu og hvort það standist sanngirnissjónarmið að velta afleiðingunum alfarið yfir á eftirlifandi maka. Umfram allt kalla ég eftir því að opinberar stofnanir muni að á bak við hverja kennitölu er manneskja. Það getur ekki talist réttlæti að stofnun viðurkenni mistök sín en sendi svo reikninginn til þess sem varð fyrir þeim. Höfundur er ferðamálafræðingur og áhugamanneskja um velferð eldri borgara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun