Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem skrifar 2. september 2026 10:32 Í gær þann 1.september tóku í gildi umfangsmiklar breytingar á greiðsluþátttöku almennings vegna þjónustu sjúkraþjálfara. Breytingarnar fela í sér að kostnaður sjúklinga eykst verulega á sama tíma og greiðsluþátttaka hins opinbera í nauðsynlegri endurhæfingu minnkar. Hefur þetta verið gert með því að stjórnvöld hafa lagt sérstakt nýtt komugjald á þjónustu sjúkraþjálfara og annarra endurhæfingarstétta. Mikilvægt er að skýra að umrædd gjöld renna að engu leiti til sjúkraþjálfara eða annarra þjónustuveitenda eins og talmeinafræðinga eða iðjuþjálfa. Þessi aukna gjaldtaka snertir sérstaklega þá sem þurfa mest á þjónustunni að halda. Ekki er hámark á umfangi komugjalda og leggst gjaldið því á alla komur í sjúkraþjálfun óháð því hversu oft einstaklingur þarf að sækja sér þjónustu. Mun þetta því hafa mest áhrif á fólk sem þarf viðvarandi meðferð eins og t.a.m. aldraða, öryrkja og aðra með langvarandi sjúkdóma eða færniskerðingar. Milljarður færðu frá ríki til sjúklinga Ljóst er að heildarumfang þesssara komugjalda verður verulegt eða a.m.k. 1,1 – 1,2 milljarður króna á ári og er þetta upphæð sem skjólstæðingar þurfa að greiða til viðbótar við fyrri kostnað. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um þessi viðbótar komugjöld þá munu: -Ellilífeyrisþegar greiða á bilinu 370 – 400 milljónir -Öryrkjar greiða á bilinu 105 – 120 milljónir -Aðrir fullorðnir greiða á bilinu 600 – 650 milljónir -Þjónusta fyrir börn er undanskilin komugjöldum Á bakvið hverja komu og hverja greiðslu eru einstaklingar með sjúkdóma, áskoranir og ólíka fjárhagsstöðu. Félagi sjúkraþjálfara hefur nú þegar borist nokkur erindi þar sem notendur þjónustunar lýsa yfir áhyggjum af þessum kostnaðarauka og þeim áhrifum sem það kann að hafa á getu þeirra til að sækja sér þjónustu. Þessar breytingar munu hafa mikil áhrif á fjölda fólks en það má ætla að a.m.k. 70.000 einstaklingar sæki sér þjónustu sjúkraþjálfara á hverju ári. Þeirra á meðal eru fjöldi aldraðra, einstaklingar með taugasjúkdóma, gigtarsjúkdóma, hjarta og lungnasjúkdóma, sem og einstaklingar með langvarandi stoðkerfiseinkenni og svo mætti lengi telja. Fyrir marga þá mun kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu hækka um tugi þúsunda á hverju ári sem mun leiða til þess að aðgengi að þjónustu mun skerðast og þá einkum hjá þeim efnaminni. Ein þeirra ábendinga sem fram hafa komið var t.a.m. frá konu sem hafði veikst alvarlega á meðgöngu af hjartabilun og þurfti sjúkraþjálfun í kjölfarið. Viðkomandi sá fram á að mánaðarlegur kostnaður eingöngu vegna komugjalda myndi aukast um 18.000 – 20.000 kr. vegna þessa og voru þær áhyggjur ekki síst fjárhagslegar vegna skertrar innkomu í fæðingarorlofi. Félag sjúkraþjálfara, ÖBÍ og Landsamband Eldri Borgara hafa öll gagnrýnt útfærslu þessarar aðgerðar, enda er þetta sú þjónusta sem fólk treystir á til að viðhalda færni, lífsgæðum og sjálfsstæðri búsetu. Þess má geta að ellilífeyrisþegar eiga 35-40% af öllum komum til sjúkraþjálfara, sem falla undir þessi komugjöld og öryrkjar um 20-25%. Mikilvægt er að árétta að umrædd gjöld eiga ekki eingöngu við þá þjónustu sem veitt er á sjúkraþjálfunarstofum landsins, heldur einnig alla göngudeildarþjónustu sjúkrahúsa, heilbrigðisstofnana og sérhæfðra endurhæfingarúrræða eins og hjarta og lungnaendurhæfingar sem og annarrar þjónustu til fullorðna einstaklinga. Forgangsröðun skiptir máli Það er verðugt og mikilvægt verkefni að ná tökum á fjármálum ríkisins og loka fyrirliggjandi fjárlagagati. Það skiptir hins vegar máli hvernig það er gert og hverjir bera kostnaðinn. Þegar gripið er til aðgerða sem fela í sér aukna kostnaðarþátttöku almennings í heilbrigðisþjónustu verður að horfa sérstaklega til þeirra áhrifa sem aukinn kostnaður getur haft á þá hópa sem treysta mest á reglulega endurhæfingu og hafa minnst svigrúm til að mæta auknum útgjöldum. Umrædd gjaldtaka styrkir fjárhagslega stöðu hins opinbera en aðeins með því að almenningur greiðir meira og ríkið minna. Því er eðlilegt að spyrja hvort rétt sé að spara með þessum hætti í þjónustu sem viðheldur færni, styður sjálfstæða búsetu, dregur úr veikindafjarvistum og kemur í veg fyrir dýrari úrræði síðar. Að leggja óheft komugjöld á þessa hópa, án skýrs hámarks, mun skerða aðgengi, auka ójöfnuð og leiða til meiri kostnaðar annars staðar í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Það er brýnt að stjórnvöld endurskoði þá útfærslu komugjalda sem nú þegar hefur lögð á almenning. Ef nauðsynlegt er að grípa til þessara aðgerða þá er það lágmarkskrafa að hámark verði sett á greiðslur komugjalda til að verja viðkvæmustu hópana. Við viljum ekki spara í dag til að borga meira á morgun. Spurningin sem eftir stendur er einföld: Hvernig viljum við forgangsraða fjármunum í heilbrigðiskerfinu og hver á að bera kostnaðinn? Höfundur er formaður Félags sjúkraþjálfara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnlaugur Már Briem Fjármál heimilisins Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Skoðun Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar