Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 2. september 2026 07:01 Félagsmiðstöðvar gegna margþættu hlutverki og eru ekki aðeins staður þar sem unglingar hittast eftir skóla. Félagsmiðstöð getur einnig veitt ungu fólki öryggi, verið athvarf, vettvangur vináttu og jafnvel staðurinn þar sem einhver fullorðinn tekur eftir því þegar eitthvað er ekki eins og það á að vera. Þess vegna hef ég áhyggjur af þeim mikla niðurskurði sem nú blasir við í frístundastarfi Reykjavíkurborgar. Borgin hefur lagt áherslu á að framlínuþjónusta verði varin þrátt fyrir umfangsmikla hagræðingu. En hvað telst framlína þegar kemur að unglingum? Er starfsmaður félagsmiðstöðvar sem hefur þekkt ungling árum saman einmitt ekki í framlínunni? Mannauðurinn skiptir öllu Félagsmiðstöðvar borgarinnar búa yfir gríðarlegum mannauði. Þar starfar fólk með reynslu og þekkingu sem verður ekki til á einni nóttu. Mikilvægast eru tengslin og traustið sem starfsfólkið hefur byggt upp við unglingana. Starfsfólk með reynslu og langan starfsaldur veit hver er alltaf mættur, hver heldur sig til hlés, hver hefur skyndilega breyst og hver þarf aðeins meiri athygli en aðrir. Unglingur segir heldur ekki endilega frá því á fyrsta degi í félagsmiðstöð ef eitthvað bjátar á. Það tekur tíma að byggja upp traust. Það geta liðið mánuðir og jafnvel ár áður en unglingur treystir fullorðnum fyrir málum sínum. Þennan mannauð er ekki eingöngu hægt að mæla í stöðugildum. Forvarnir sem virka Félagsmiðstöðvar gegna mikilvægu hlutverki í því forvarnastarfi sem við Íslendingar höfum getað verið stolt af. Í félagsmiðstöðvunum geta unglingar komið saman í öruggu og vímuefnalausu umhverfi undir leiðsögn fullorðinna. Félagsmiðstöðvar eru öllum opnar. Það skiptir máli. Það hafa ekki allar fjölskyldur efni á að greiða fyrir íþróttastarf, tónlistarnám eða annað skipulagt frístundastarf barna sinna. Félagsmiðstöðin spyr hins vegar ekki um efnahag foreldra. Félagsmiðstöðin er mörgum ungmennum mikilvægasti félagslegi vettvangurinn utan skóla og heimilis. Þar geta forvarnir gripið inn í áður en vandinn vex og fer úr böndum. Þess vegna verður að skoða þessi mál í víðara samhengi. Ekki dugir að horfa aðeins á kostnaðinn sem sparast við fækkun stöðugilda. Minni tími starfsfólks til að sinna unglingunum getur haft afleiðingar sem sjást ekki strax í bókhaldi borgarinnar. Hver sér unglinginn? Ég hef fullan skilning á því að Reykjavíkurborg þurfi að hagræða. En hagræðing verður að byggja á mati á afleiðingunum, ekki aðeins því sem kann að sparast í næstu fjárhagsáætlun borgarinnar. Nýr meirihluti hefur tekið við stjórn borgarinnar og boðar mikinn niðurskurð og hagræðingu. Það má ekki verða fyrsta aðgerðin að sækja sparnað í þjónustu við börn og ungmenni. Þegar skorið er niður í félagsmiðstöðvum er ekki aðeins verið að skera niður stöðugildi. Það er verið að taka áhættu með tengsl sem geta skipt sköpum í lífi unglingsins. Höfundur er þingkona Flokks fólksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Félagsmál Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Sjá meira
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar