Setja gjald á hraðtískuvörur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. september 2026 20:45 Frakkar berjast núna gegn hraðtískufyrirtækjum. Getty Frakkar hafa innleitt sérstök gjöld á svokallaðar hraðtískuvörur. Með þessu reyna stjórnvöld að sporna gegn sölu á ódýrum fatnaði sem finnst á vefverslunarsíðum.
Gjaldið gæti verið allt að 19,5 evrum á hverja flík eða tæpar 2800 krónur. Sú upphæð getur haft áhrif þar sem hraðtískuvörur eru oft afar ódýrar. Gjaldið tók gildi í dag og er í samræmi við ný lög í Frakklandi. Nýju lögin höfðu það að markmiði að setja regluverk í kringum hraðtískufyrirtæki á við Shein, Temu og AliExpress. Viðskiptaráðuneyti Kína hefur lýst frönsku lögunum sem mismunun og viðskiptahindrun samkvæmt BBC. Þau brjóti gegn reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Mathie Lefevre, franskur ráðherra, sagði hins vegar að skaðleg áhrif hraðtísku á umhverfið og efnahagslífið væru vel þekkt. Hraðtíska er þegar framleiðslan er hröð og áhersla er lögð á að framleiða sem mest fyrir sem minnstan kostnað til þess að halda í við nýjustu tísku. Mikil umhverfismengun getur fylgt slíkri framleiðslu auk þess sem að starfsfólk er oft á lágum launum og vinnur við hættulegar aðstæður samkvæmt Vísindavefnum. Löggjöfin skilgreinir hraðtísku út frá tveimur þáttum. Í fyrsta lagi er það magn fatnaðar sem er settur á markað og í öðru lagi kostnaður við viðgerð á flíkunum í hlutfalli við kaupverð þeirra. Gjaldið er síðan ákvarðað eftir því hvernig hver vara stenst þessa tvo staðla. Gjaldið verður hins vegar aldrei hærra en fimmtíu prósent af verði vörunnar fyrir skatt. Í svari Shein við fyrirspurn BBC segir að löggjöfin myndi skerða kaupmátt franskra neytenda.
Frakkland Tíska og hönnun Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira