Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kjartan Kjartansson skrifar 26. ágúst 2026 14:14 Mæður ungmenna sem sviptu sig lífi halda á myndum af börnum sínum fyrir utan dómshúsið í Oakland í Kaliforníu þar sem réttarhöld í máli Meta hófust í síðustu viku. Málinu er nú lokið með sátt. AP/Noah Berger Samfélagsmiðlarisinn Meta féllst á að greiða jafnvirði tvö þúsund milljarða íslenskra króna með sátt sem það gerði við flest ríki Bandaríkjanna í dag. Ríki höfðuðu mál gegn fyrirtækinu fyrir að gera ekki nóg til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif samfélagsmiðla þess á börn.
Auk sáttargreiðslunnar upp á sautján milljarða dollara samþykkti Meta að bæta öryggis barna á Facebook og Instagram, að sögn AP-fréttastofunnar. Fjörutíu og sjö ríki stóðu að málsókn gegn fyrirtækinu. Þau sökuðu fyrirtækið um að herja vísvitandi á börn þrátt fyrir að það spillti geðheilsu þeirra. „Um árabil blekki Meta almenning vísvitandi um ávanabindandi og skaðlega hönnun sem hefur valdið glundroða í geðheilsu ungmenna,“ sagði Jay Jones, dómsmálaráðherra Virginíu þegar tilkynnt var um sáttina. Meta var sagt hafa hannað samfélagsmiðla sína vísvitandi til þess að vera ávanabindandi fyrir börn. Fyrirtækið hafi ennfremur brotið lög með því að safna kerfisbundið gögnum um börn yngri en þrettán ára án samþykkis foreldra þeirra. Réttarhöld í málinu hófust í Kaliforníu í síðustu viku og átti Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, að bera vitni í því. Sáttin bindur enda á dómsmálið. Ólíklegt er að sáttargreiðslan verði sérlega íþyngjandi fyrir Meta. Hún er aðeins dropið í hafið miðað við tekjur félagsins upp á 201 milljarð dollara í fyrra. Á meðal aðgerðanna sem stjórnendur Meta féllust á að hrinda í framkvæmd er að setja hámarka á hversu lengi börn geta notað samfélagsmiðla á einum degi. Þá eiga bæði Facebook og Meta að hætta að senda tilkynningar úr forritinu á skólatímum og taka upp strangara eftirlit með aldri notenda.
Samfélagsmiðlar Meta Bandaríkin Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira