Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar 23. ágúst 2026 08:30 Einstaklingur sem leggur hart að sér en sér stóran hluta launanna hverfa í vexti í hverjum mánuði er ekki eins frjáls og hann ætti að vera. Ungt fólk sem kemst ekki að heiman vegna þess að það kemst ekki í gegnum greiðslumat er ekki frjálst til að hefja eigið líf. Par sem frestar barneignum vegna húsnæðisverðs hefur færri valkosti. Eigandi lítils fyrirtækis sem hættir við að fjárfesta vegna vaxtakostnaðar hefur ekki frelsi til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Það er hæpið að teljast vera frjáls þegar maður er bundinn af okurvöxtum og verðbólgu sem étur upp launin eða möguleika til fjárfestinga. Við tölum oft um frelsi eins og það snúist fyrst og fremst um afskipti eða stærð ríkisins. Það skiptir vissulega máli, en frelsi felst í svigrúmi fólks til að ráða eigin lífi. Að geta flutt að heiman, fara í nám, stofnað fjölskyldu, skipt um starf eða hrint hugmynd í framkvæmd. Þessa hlið frelsisins vantar oft þegar við ræðum fullveldi Íslands. Fullveldið sem verkfæri Fullveldið er sett fram eins og eitthvað abstrakt hugtak sem svífur yfir vötnum landsins. Eins og mikilvægasta verkefni ríkisins sé að varðveita öll formleg völd ríkisins hér heima, óháð því hvaða áhrif það hefur á líf þeirra sem í landinu búa. Fullveldið tilheyrir þjóðinni og tilgangur ríkisins er að tryggja öryggi, réttindi, tækifæri og frelsi þess til að lifa sínu eigin lífi. Fullveldið er ákveðið verkfæri og spurninginn er hvernig við beitum því. Þegar við tökum þátt í og gerum alþjóðlega samninga nýtum við fullveldið okkar. Þátttaka í NATO, EES og Schengen eru frábær dæmi um það hvernig við höfum beitt fullveldinu til að tryggja meiri réttindi, aukið öryggi og fleiri tækifæri hér á landi. Þannig höfum við sem lítil þjóð sem treystir á að alþjóðleg lög og reglur séu virt tryggt eigin hagsmuni í krafti fullveldisins. Krónan og frelsið Sama hugsun á að gilda um gjaldmiðilinn. Krónan er gjaldmiðill en ekki mælikvarði á sjálfstæði þjóðarinnar. Hún er verkfæri og hún á að þjóna fólkinu sem notar hana. Við getum vissulega sagt að með krónunni ráðum við sjálf okkar eigin peningastefnu. En fyrir fjölskylduna sem greiðir hundruð þúsunda króna í vexti á hverjum mánuði skiptir minna máli hver ákveður vextina en hversu háir þeir eru. Okkur er að sjálfsögðu í sjálfsvald sett að halda í krónuna en frelsið til að gera eitthvað þýðir ekki sjálfkrafa að það sé skynsamlegt. Auðvitað er krónan ekki eina ástæða þess að vextir og verðbólga eru há hér á landi, en hún er virkilega stór hluti þess. Þessi litli og sveiflukenndi gjaldmiðill hefur gríðarlegan kostnað í för með sér. Þann kostnað greiða heimilin og fyrirtækin með háum vöxtum og litlum fyrirsjáanleika. Evrusvæðið er ekki fullkomið frekar en ég eða þú, og þar gera stjórnvöld mistök eins og annars staðar. En heimili í nágrannaríkjum búa ekki við íslenska krónuvexti. Fyrirtæki þar geta tekið lán á hagstæðari kjörum og ráðist í fjárfestingar sem væru einfaldlega of dýrar hér. Þess vegna eigum við að kanna af fullri alvöru hvort evran gæti skapað jarðveg fyrir betri lífskjör á Íslandi. Hvort stærri og stöðugri gjaldmiðill geti tryggt lægri vexti, dregið úr sveiflum og gefið fólki meira frelsi til að ráða eigin lífi. Fullveldinu beitt Það er einmitt það sem þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um. Við erum ekki að kjósa um að ganga í Evrópusambandið. Við erum að kjósa um það hvort við eigum að hefja aðildarviðræður að nýju, leggja okkar kröfur á borðið og komast að því hvaða samningi við getum náð fyrir fyrir Ísland. Meðal mikilvægustu markmiðanna er að skapa trúverðuga leið að evrunni og kanna möguleika á myntsamstarfi eins fljótt og aðstæður leyfa. Við eigum jafnframt að semja um sjávarútveginn, landbúnaðinn, auðlindirnar og þá sérstöðu sem fylgir því að vera eyja norður í Atlantshafi. Þegar niðurstaðan liggur fyrir fær þjóðin að ákveða hvort samningurinn sé nægilega góður. Ef hann bætir ekki lífskjör, tryggir ekki hagsmuni Íslands eða stenst ekki þær kröfur sem við gerum, segjum við einfaldlega nei. Við eigum líka að horfast í augu við að formlegt vald og áhrif eru ekki alltaf sami hluturinn. Í dag tökum við upp stóran hluta regluverks Evrópusambandsins í gegnum EES án þess að eiga atkvæðisrétt þegar reglurnar eru samþykktar. Með aðild fengjum við fulltrúa við borðið og beina aðkomu að ákvörðunum sem munu hvort sem er áhrif hér á landi. Það er því of einfalt að segja að samstarf við aðrar þjóðir skerði sjálfkrafa fullveldið. Í hvert sinn sem við höfum stigið skref í átt að aukinni alþjóðlegri samvinnu höfum við tryggt áhrif okkar, styrkt fullveldi ríkisins og aukið frelsi einstaklingsins. Já 29. ágúst er engin yfirlýsing um að Evrópusambandið leysi öll okkar vandamál. Við kjósum um að halda dyrunum opnum á meðan við könnum hvað okkur býðst áður en við lokum þeim. Fullveldi ætti að vera leið til aukinna tækifæra og meira frelsi fyrir fólkið í landinu. Því fullveldið er ekki til fyrir ríkið heldur þá sem þar búa. Höfundur er varaþingmaður og 2. sæti lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun