Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 14:19 Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar er í skýunum eftir almyrkvann í gær. Smá rifa myndaðist fyrir sól og tungl rétt áður en almyrkvi varðþ Vísir Mikil hamingja ríkir í Snæfellsbæ eftir almyrkva sólu í gær að sögn bæjarstjórans. Hann telur að allt að tuttugu þúsund ferðamenn hafi heimsótt bæjarfélagið síðustu daga. Allar hendur séu upp á dekki til að gera upplifun þeirra góða.
Snæfellsbær byrjaði að undirbúa almyrkva á sólu fyrir um tveimur og hálfu ári að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra. Meðal þess sem hafi verið í undirbúningi lengi séu almyrkvahátíðarhöldin sem nú standa yfir á Hellissandi þar sem um og yfir þjú þúsund ferðamenn dvelja. Himnarnir opnuðust á hárréttum tíma Lengi vel leit ekki út fyrir að það sæist til sólar í gær en það breyttist skömmu fyrir almyrkvann. „Upplifunin var mögnuð í gær sérstaklega vegna þess að lengi vel var alskýjað en skömmu fyrir almyrkvann birtust sólin og tunglið gegnum skýin þegar smá rifa myndaðist á himninum. Það var hægt að horfa án sólmyrkvagleraugna sem gerði upplifunina enn sterkari og hægt var að sjá alla litina. Það voru allir svo ánægðir og glaðir að þeir skyldu sjá myrkvann,“ segir Kristinn. Hann segir ferðamenn á svæðinu í skýjunum. „Ég rakst á fullt af ferðamönnum í gær og það voru allir svo glaðir með að þeir skyldu hafa getað séð sjálfan almyrkvann. Það voru allir að þakka mér fyrir að fá að koma hingað og upplifa þetta sjónarspil,“ segir hann. Áróra Jónasdóttir, Leifur Steinn Gunnarsson og Breki Atlason voru himinlifandi eftir almyrkvann á Hellisandi. Vísir/Bjarni Meðal þeirra sem upplifðu almyrkvann í bæjarfélaginu í gær var Leifur Steinn Gunnarsson gestur á almyrkvahátíðinni á Hellissandi. Ég horfði á veðurspána dagana fyrir almyrkvann og það var alltaf bara spáð hér rigningu eða skýjum. Það kom hins vegar smá rifa og almyrkvinn sást og þess vegna sástu án þess að vera með gleraugun á þér og þetta var rosalega fallegt. Rúsínan í pylsuendanum var þegar maður kraup hér niður og bað kærustu sinnar, nú unnustu og það gerði alveg almyrkvann,“ segir Leifur. Allt gekk vel þrátt fyrir gríðarlegan mannfjölda Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir mannfjöldann í bæjarfélaginu hafa næstum tífaldast síðustu daga. „Ég held að hér í Snæfellsbæ hafi verið um fimmtán til tuttugu þúsund manns en sveitarfélagið nær m.a. yfir fimm byggðarkjarna eða Ólafsvík, Rif, Hellissand, Arnarstapa og Hellna. Nokkur þúsund komu í rútum sem létti á umferðinni,“ segir Kristinn. Kristinn er afar ánægður með hvernig til hefur tekist. „Gott skipulag virðist geta gengið upp og það gerði það í gær. Það er búið að vera að skipuleggja þetta hér í tvö og hálft ár. Við reyndum að dreifa okkar gestum um allt sveitarfélagið og það tókst alveg frábærlega. Það urðu því engin vandræði,“ segir hann. Allar hendur upp á dekk Kristinn segir að íbúar hafi lagst á eitt um að ferðmenn njóti sín á svæðinu. „Það eru allir á haus hér. Margir hafa þrefaldað eða fjórfaldað starfsmannafjöldann sinn til að reyna að þjónusta allt þetta fólk. Ég er svo ánægður með það hvað allir lögðu sig fram um að gera þetta þannig að gestir okkar gætu fengið góða þjónustu,“ segir Kristinn að lokum.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Snæfellsbær Ferðaþjónusta Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira