Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 7. ágúst 2026 12:00 Víðtækar götulokanir verða í miðborginni. Sumum götum verður lokað fyrir umferð í hádeginu í dag. Reykjavíkurborg Von er á metþátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga sem fram fer á morgun og taka fyrstu götulokanir í miðborg Reykjavíkur gildi núna í hádeginu. Mikil eftirvænting ríkir fyrir vagni tónlistarmannsins Páls Óskars.
Gangan hefst líkt og síðustu ár hjá Hallgrímskirkju klukkan tvö og er gengið þaðan eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Hún endar við Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við um klukkan þrjú. „Þar erum við með alveg landslið hinsegin listamanna. Þar verða Sigga Beinteins, Páll Óskar, Una Torfa, Guðjón Þorgils sem er með lag Hinsegin daga í ár og fleiri listamenn,“ sagði Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga. Von er á metþátttöku í göngunni í ár en fimmtíu vagnar eru skráðir til leiks. „En í fyrra vorum við með 38 þannig það er mikil aukning í ár. Og þetta sýnir sig hvað það er mikil samstaða í samfélaginu núna.“ Helga Haraldsdóttir er formaður Hinsegin daga.Hinsegin dagar Götulokanir verða í miðbænum vegna hátíðarinnar. Einhverjum götum verður lokað í hádeginu í dag og standa yfir til klukkan sex annað kvöld. Upplýsingar um götulokanir má finna á hinsegindagar.is þar sem fólk er hvatt til að nýta sér almenningssamgöngur. Von er á einhverri rigningu í höfuðborginni en samkvæmt spám styttir upp með deginum og jafnvel von á smá sólarglætu. Líkt og undanfarin ár ríkir mikil spenna um vagn tónlistarmannsins Páls Óskars og segir Helga mjög metnaðarfullt atriði í vændum. „Ég veit að það er eitthvað mjög spennandi í bígerð. Við erum einmitt að fara að skoða bílinn hjá honum í dag og skoða hvort hann sé nokkuð of hár.“ „Ég vil bara biðja öll sem sjá sér fært að koma niður í bæ með okkur og fagna fjölbreytileikanum og njóta í þessari samveru og samstöðu sem myndast á gleðigöngu Hinsegin daga.“
Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira