Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Freyja Þórisdóttir skrifar 6. ágúst 2026 11:32 Það er hægt að nálgast sólmyrkvagleraugu í verslunum víða um land sem og á vefversluninni sólmyrkvagleraugu.is en þau eru fáanleg í pappaútgáfu og plastútgáfu. Vísir/Viktor Freyr Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar á meðan deildarmyrkva stendur.
Þessi er annar í röð fróðleiksmola á Vísi sem munu birtast reglulega næstu vikuna þangað til að almyrkvi fer yfir sólu á sjötta tímanum síðdegis tólfta ágúst næstkomandi. Almyrkvi frá sólu hefur ekki sést á Íslandi í 72 ár en föstudaginn 20. mars 2015 varð deildarmyrkvi hérlendis. Þarft að taka gleraugun af um stund Það er ekki öruggt að setja upp venjuleg sólgleraugu til að horfa á sólmyrkva því þau hleypa í gegn þúsund sinnum meira ljósi og hættulegri ósýnilegri geislun en óhætt er. Þótt venjuleg sólgleraugu verji flest að hluta til gegn útfjólubláu ljósi við hefðbundna útivist eru sólmyrkvagleraugu með sérhæfðum sólsíum sem eru hundrað þúsund sinnum dekkri. Sólmyrkvagleraugu eru sérstök hlífðargleraugu. Augun eru afar viðkvæm fyrir geislum sólarinnar og því nauðsynleg þeim sem hyggjast berja sólmyrkvann augum.vísir/gva „Einfaldasta, öruggasta og ódýrasta leiðin til að virða sólmyrkvann fyrir sér er úti um örugg sólmyrkvagleraugu,“ segir Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, í fræðslumyndbandi en hann er ritstýrir sólmyrkvavefnum solmyrvki2026.is . Til þess að þau teljist örugg verði þau að uppfylla nokkur skilyrði, í fyrsta lagi verði að koma fram heimilisfang framleiðanda, ISO 12312-2 vottun og CE-vottun. „Það þarf ekki að nota gleraugun allan tímann, bara á meðan augun beinast að sólinni. Þess á milli tökum við gleraugun af og högum okkur eins og hvern annan sólríkan dag,“ segir Sævar. Mökuðu sóti á gleraugu Sólmyrkvagleraugun séu eingöngu nauðsynleg í deildarmyrkvanum, það er að segja þegar tunglið er hægt og rólega að fara fyrir sólina. Í almyrkvanum verði svo að taka gleraugun af og horfa með berum augum, annars sjáist almyrkvinn ekki. „Það á aldrei að nota sólmyrkvagleraugu með neinum öðrum sjóntækjum, aldrei handsjónauka eða stjörnusjónauka,“ segir Sævar og útskýrir hvernig en þau brenni annars einfaldlega upp. Þó má nota sólmyrkvagleraugu yfir venjuleg gleraugu. Sólmyrkvinn á Íslandi árið 1954 þótti svo magnað fyrirbæri að daginn eftir var hann eina málið á forsíðu Alþýðublaðsins en þá varð almyrkvi syðst á landinu. Fuglar flugu til hafs, blóm lokuðu krónum sínum, og himinn og jörð tóku hinum sérkennilegustu litbrigðum, sagði blaðið. Þá voru ekki í boði eins fáguð sólmyrkvagleraugu og nú en einhverjir tóku sig til og mökuðu sóti á venjuleg gleraugu sem var svo horft í gegnum en sá myrkvi sást vel syðst á Suðurlandi, einna best nærri Dyrhólaey. Almyrkvi Einnig má sjá götulokanir á höfuðborgarsvæðinu ef þysjað er inn. Smellið á línurnar fyrir frekari upplýsingar.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Geimurinn Sólin Tunglið Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira