Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Rakel Sveinsdóttir skrifar 5. ágúst 2026 07:03 Gervigreindin er frábær tækni en notkun hennar er að innleiðast hraðar en vinnustaðir ná að setja sér reglur um notkun hennar, eftirlit og ábyrgð. Vaxandi er umræða um að sumt fólk missi ákveðið veruleikaskyn eða jarðtengingu í kjölfar mikillar notkunar á gervigreind. Endi jafnvel á spítala með AI-geðrof. Vísir/Getty Geðlæknir í San Francisco segir frá því í viðtali á dögunum að á einu ári hafi hann lagt inn tólf einstaklinga sem höfðu misst tengsl við raunveruleikann eftir mjög mikla notkun á gervigreind.
Geðlæknirinn umræddi notar hugtakið AI psychosis, eða AI geðrof. Þetta er ekki eina dæmið. Í grein í geðlæknaritinu Psychiatric Services er bent á að minnsta kosti 26 tilvik sem fjölmiðlar hafi greint frá þar sem sem geðrof eða ranghugmyndir virðast hafa tengst mikilli notkun á gervigreind. Höfundarnir leggja þó áherslu á að enn vanti rannsóknir til að skera úr um hvort um sé að ræða nýtt klínískt fyrirbæri eða hvort gervigreindin sé fyrst og fremst að magna undirliggjandi geðræna erfiðleika hjá viðkvæmum einstaklingum. Fleiri dæmi mætti nefna: frá Bretlandi, Kanada, Bandaríkjunum og víðar. Í fyrrgreindri grein Fastcompany er talað um að þessi vaxandi vandi sé hinn nýi blindi blettur í stjórnun. Nefna má þrjú einkennandi atriði sem geta fylgt mikilli notkun gervigreindar: Að fólk sé hætt að yfirfara nógu vel það sem kemur frá gervigreindinni, treysti bara því sem hún segir. Að fyrirtæki séu að innleiða notkun á gervigreind hraðar en þau ná að móta reglur um notkun hennar, ábyrgð og eftirlit. Að gervigreindin sé farin að fá meira vægi en starfsfólkið sjálft. Vísað er til kannana sem styðja ofangreint. Til dæmis niðurstöður nýlegrar könnunar þar sem 74% stjórnenda segjast treysta ráðleggingum AI betur en ráðum starfsfólks og 44% stjórnenda sögðust frekar fylgja röksemdarfærslu AI en sínu eigin innsæi. Í grein FastCompany telur höfundurinn gervigreindina reyndar gríðarlega öflugt verkfæri sem fyrirtæki eigi að nýta sér. Tæknin sé góð en áhyggjurnar snúist frekar um hversu hratt það er að gerast að starfsfólk og stjórnendur eru að eyða miklum samskiptum við „ráðgjafa“ sem talar alltaf af öryggi, er þolinmóður, kurteis og styðjandi. Þetta sé nú þegar að sýna sig í því að fólk er að treysta meira á það sem kemur frá gervigreind en sína eigin dómgreind eða samstarfsmanna sinna. Hvort fyrirbærið AI-geðrof verður eitthvað sem atvinnulífið fer að heyra meira um næstu misseri skal ósagt látið hér. En fern góð ráð má nefna sem vert er að velta fyrir sér: Að vinnustaðir leggi áherslu á að varðveita gagnrýna hugsun Að fólk leggi áherslu á að hlusta á samstarfsfólk sitt (ekki aðeins gervigreindina). Að taka engu frá gervigreindinni sem heilögum sannleika án þess að yfirfara efnið. Að fyrirtæki setji sér skýrar reglur um notkun tækninnar.
Gervigreind Góðu ráðin Stjórnun Geðheilbrigði Tengdar fréttir Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Það er ólíklegt að gervigreindin leysi stjórnendur af hólmi. En nú þegar eru stjórnendur víðast hvar farnir að nýta sér gervigreindina í margvíslegum tilgangi. 30. apríl 2026 07:00 Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Sitt sýndist hverjum um stóra apa-sjálfumálið hér um árið. Sem endaði sem margra ára mál fyrir dómstólum. 24. apríl 2026 07:04 „Prófaðu að segja við AI: Ókei, ég vil að þú hjálpir mér í vinnunni“ Það er ekki laust við að manni finnist samtal við Þórönnu K. Jónsdóttur AI leiðbeinenda aðeins vera fyrir þá sem eru „lengra komnir.“ Svona með tilliti til þekkingar á gervigreindinni. 24. september 2025 07:01 Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Það hljómar kannski skringilega en mjög líklega verður staðan þannig fljótlega að öll munum við eiga okkar stafræna tvíbura eða klóna. 27. maí 2026 07:02 Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Brynjólfur Borgar Jónsson, eigandi Data Lab, segir eina stærstu áskorunina við gervigreindina í dag vera að samfélagið sjálft sé ekki tilbúið fyrir hraðann í þróuninni. 28. maí 2026 07:02 Mest lesið Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Bú Straums var fremur lítið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Gullslegið klósett Bakkavararbræðra flottast Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Segðu Já í vinnunni og það strax! Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Sjá meira
Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Það er ólíklegt að gervigreindin leysi stjórnendur af hólmi. En nú þegar eru stjórnendur víðast hvar farnir að nýta sér gervigreindina í margvíslegum tilgangi. 30. apríl 2026 07:00
Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Sitt sýndist hverjum um stóra apa-sjálfumálið hér um árið. Sem endaði sem margra ára mál fyrir dómstólum. 24. apríl 2026 07:04
„Prófaðu að segja við AI: Ókei, ég vil að þú hjálpir mér í vinnunni“ Það er ekki laust við að manni finnist samtal við Þórönnu K. Jónsdóttur AI leiðbeinenda aðeins vera fyrir þá sem eru „lengra komnir.“ Svona með tilliti til þekkingar á gervigreindinni. 24. september 2025 07:01
Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Það hljómar kannski skringilega en mjög líklega verður staðan þannig fljótlega að öll munum við eiga okkar stafræna tvíbura eða klóna. 27. maí 2026 07:02
Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Brynjólfur Borgar Jónsson, eigandi Data Lab, segir eina stærstu áskorunina við gervigreindina í dag vera að samfélagið sjálft sé ekki tilbúið fyrir hraðann í þróuninni. 28. maí 2026 07:02