Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar 30. júlí 2026 09:30 Það hefur verið ánægjulegt að sjá umræðuna um námsgögn taka við sér síðustu vikur. Það er löngu tímabært. En þegar hlustað er á umræðuna situr maður oft eftir sem eitt stórt spurningamerki. Ef við vitum að það vantar fjölbreyttara námsefni, ef við vitum að kennarar eru undir miklu álagi og ef við vitum að þróun námsefnis hefur setið á hakanum árum saman, af hverju nýtum við þá ekki betur þær lausnir sem þegar eru að verða til? Í lögum um Þróunarsjóð námsgagna kemur skýrt fram að hlutverk sjóðsins sé að styðja nýsköpun, þróun og fjölbreytni í námsefni. Í forgangsáherslum þessa árs er sérstaklega nefnt námsefni fyrir íslenskukennslu, stafrænt námsefni og jafnvel gervigreind í skólastarfi. Þetta eru metnaðarfull markmið. En markmið duga ekki ein og sér. Það þarf líka að vera raunverulegt svigrúm fyrir nýjar hugmyndir að verða að veruleika. Íslendingar eru góðir í nýsköpun. Það sést í sjávarútvegi, heilbrigðistækni, hugbúnaði og ferðaþjónustu. En þegar kemur að menntamálum virðist kerfið fyrst og fremst horfa inn á við. Það hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvort ríkið eigi í auknum mæli að þróa allar lausnir sjálft eða hvort það eigi líka að nýta þá þekkingu og það hugvit sem verður til hjá frumkvöðlum og fyrirtækjum um allt land. Við erum ekki að tala um að einkavæða menntakerfið. Þróunin er hröð og við erum að missa af lestinni. Kennarar hafa ekki efni á að bíða í mörg ár eftir nýju efni. Börnin enn síður og það mætti jafnvel færa rök fyrir að ástandið sé krítískt. Við eigum frábæra kennara. Við eigum öflugt skólasamfélag. Við eigum skapandi fólk sem er tilbúið að þróa nýjar lausnir. Spurningin er hvort við séum tilbúin að skapa því raunverulegt svigrúm. Það væri synd ef við enduðum þessa mikilvægu umræðu á því að eingöngu sammælast um að það vanti meira fjármagn, heldur þurfum líka að ræða hvernig við ætlum að nýta það. Höfundur er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og stofnandi Lesa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Íslensk tunga Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Það hefur verið ánægjulegt að sjá umræðuna um námsgögn taka við sér síðustu vikur. Það er löngu tímabært. En þegar hlustað er á umræðuna situr maður oft eftir sem eitt stórt spurningamerki. Ef við vitum að það vantar fjölbreyttara námsefni, ef við vitum að kennarar eru undir miklu álagi og ef við vitum að þróun námsefnis hefur setið á hakanum árum saman, af hverju nýtum við þá ekki betur þær lausnir sem þegar eru að verða til? Í lögum um Þróunarsjóð námsgagna kemur skýrt fram að hlutverk sjóðsins sé að styðja nýsköpun, þróun og fjölbreytni í námsefni. Í forgangsáherslum þessa árs er sérstaklega nefnt námsefni fyrir íslenskukennslu, stafrænt námsefni og jafnvel gervigreind í skólastarfi. Þetta eru metnaðarfull markmið. En markmið duga ekki ein og sér. Það þarf líka að vera raunverulegt svigrúm fyrir nýjar hugmyndir að verða að veruleika. Íslendingar eru góðir í nýsköpun. Það sést í sjávarútvegi, heilbrigðistækni, hugbúnaði og ferðaþjónustu. En þegar kemur að menntamálum virðist kerfið fyrst og fremst horfa inn á við. Það hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvort ríkið eigi í auknum mæli að þróa allar lausnir sjálft eða hvort það eigi líka að nýta þá þekkingu og það hugvit sem verður til hjá frumkvöðlum og fyrirtækjum um allt land. Við erum ekki að tala um að einkavæða menntakerfið. Þróunin er hröð og við erum að missa af lestinni. Kennarar hafa ekki efni á að bíða í mörg ár eftir nýju efni. Börnin enn síður og það mætti jafnvel færa rök fyrir að ástandið sé krítískt. Við eigum frábæra kennara. Við eigum öflugt skólasamfélag. Við eigum skapandi fólk sem er tilbúið að þróa nýjar lausnir. Spurningin er hvort við séum tilbúin að skapa því raunverulegt svigrúm. Það væri synd ef við enduðum þessa mikilvægu umræðu á því að eingöngu sammælast um að það vanti meira fjármagn, heldur þurfum líka að ræða hvernig við ætlum að nýta það. Höfundur er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og stofnandi Lesa.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar