Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar 29. júlí 2026 09:03 Sonur minn er 16 ára og tók þátt á knattspyrnumótinu Rey Cup um síðustu helgi. Hann er litblindur. Hann fæddist litblindur þar sem hann erfði gallað litsjónargen frá mér, móður sinni. Litblinda getur valdið einstaklingi miklum vandræðum í fótbolta þar sem hraðinn er mikill. Sonur minn sér lítinn sem engan mun á pastellitum og mörgum dökkum litum, eins og svörtum, rauðum, grænum, brúnum, bláum, fjólubláum og vínrauðum. Hann sér hins vegar hvítan og gulan vel og því geta hvít eða gul vesti verið einfalt hjálpartæki sem gera honum kleift að greina á milli liðsfélaga og mótherja í hraða leiksins, þegar bæði lið klæðast þessum litum. Myndin sýnir dæmi um hvernig aðstæður á fótboltavelli geta birst litblindum einstaklingi.UEFA Þrátt fyrir þessa einföldu lausn hefur sonur minn lengi verið tregur til að segja frá litblindunni og minna á vestin þegar hann sér lítinn sem engan mun á búningunum. Þeir geta þó virst mjög ólíkir þeim sem eru með eðlilega litsjón. Ég hef oft hvatt hann til að láta þjálfara og dómara vita svo hægt sé að nota vesti þegar þess þarf. Ég hef farið á leiki þar sem hann hefur ítrekað sent boltann á mótherjana því hann gat ekki greint á milli búninganna. Eftir einn slíkan leik ræddum við málið við þjálfarann sem hefur sýnt þessu mikinn skilning og verið duglegur að tryggja að vesti séu notuð þegar þess þarf. UEFA Á Rey Cup skildi ég hins vegar hvers vegna sonur minn hefur síður viljað minna á litblinduna og notkun vesta. Ég varð vitni að skilningsleysi, hneykslun og athugasemdum frá sumum áhorfendum þegar vesti voru notuð. Sumir veltu því jafnvel fyrir sér hvort þetta væri uppspuni eða leið til að skapa forskot í leiknum. Í fjórum af sex leikjum mótsins þurfti að nota vesti þar sem sonur minn sá ekki mun á búningunum. Í þremur þeirra klæddist hans eigið lið vestunum. Vestin eru hjálpartæki sem gera litblindum kleift að sjá það sama og aðrir. Talið er að einn af hverjum tólf körlum sé litblindur. Því er tölfræðilega líklegt að í hverju karlaliði sé að minnsta kosti einn litblindur leikmaður. KSÍ hóf mikilvægt verkefni árið 2020 til að vekja athygli á litblindu í fótbolta. Markmið verkefnisins var að öll knattspyrnuhreyfingin og þeir sem að henni koma yrðu meðvitaðir um litblindu og þær áskoranir sem litblindir leikmenn geta staðið frammi fyrir. Reynsla mín af Rey Cup bendir þó til þess að enn sé þörf á frekari vitundarvakningu um litblindu í fótbolta. Ég vildi því vekja athygli á sýn sonar míns og hvetja til þess að við mætum litblindum leikmönnum af skilningi, umburðarlyndi og virðingu. Höfundur er fótboltamamma. Myndirnar eru úr leiðbeiningabæklingi UEFA, Colour Blindness in Football, sem hefur það markmið að auka vitund um litblindu og bæta upplifun litblindra leikmanna, þjálfara, dómara og áhorfenda. Bæklinginn má nálgast hér: https://editorial.uefa.com/resources/0250-0f842ef99f76-09e0413036be-1000/colour_blindness_in_football_fa_uefa_guidance_booklet.pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi ReyCup Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar