Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar 29. júlí 2026 07:00 Þeir sem hafa fylgst vel með skoðanagreinum á Vísi og víðar undanfarnar vikur ættu að þekkja Halldór Jörgen Olesen. Hann birtir reglulega pistla þar sem markmiðið er að sannfæra lesanda að kjósa að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið í ágúst. Það er auðvitað fullkomlega eðlilegt, en það sem ég geri hins vegar athugasemd við er hvernig pistlarnir hans eru unnir. Halldór lætur nefnilega gervigreind um skrifin. Þetta hefur hann viðurkennt opinberlega í samtölum á Facebook og lítur svo á að það sé ekkert til að skammast sín fyrir eða fela. Hann segist fara yfir allar fullyrðingar gervigreindarinnar og standa við þær. Í pistli hans þann 27. júlí telur Halldór upp nokkrar tölur. Vandamálið er hins vegar að þær eru allar rangar. Ástæðan fyrir því er að tölurnar eru að finna í töflum sem að gervigreindin á erfitt með að lesa úr. Skoðum þetta frekar: “79% Finna segja að ESB veiti skjól í órólegum heimi.” Rétt tala er 75%.[1] “83% eru sátt við lífskjör sín.” Hér er óljóst hvaða spurningu Halldór er að vísa í. Líklega er hann að vísa í spurningu D70, “On the whole, are you very satisfied, fairly satisfied, not very satisfied or not at all satisfied with the life you lead?”, eða spurningu D70a, “On the whole, are you very satisfied, fairly satisfied, not very satisfied or not at all satisfied with your daily life?”. Í þessum spurningum er rétt tala hinsvegar ekki 83% heldur 95% í fyrri spurningunni og 94% í þeirri seinni.[2] “76% segja að Finnland hafi hagnaðst á ESB-aðild.” Rétt tala er 79%.[3] Ég hef gagnrýnt þessa notkun gervigreindar af hálfu Halldórs í samtali okkar á milli. Ég fullyrði að það sé blekking við lesandann að birta texta skrifaðan af gervigreind undir nafni manneskju. Að telja lesanda trú um að hann sé að lesa skoðun Halldórs, byggða á reynslu hans, upplifun og þekkingu, þegar lesandinn er í raun bara að lesa almennt gervigreindarslopp. Mér þykir þetta gott dæmi um upplýsingaóreiðu sem á ekkert erindi í þessa gríðarlega mikilvægu þjóðfélagsumræðu. Höfundur er tölvunarfræðingur. Heimildir [1] https://euneighbourseast.eu/wp-content/uploads/2026/05/standard-eurobarometer-105-spring-2026_data-annex_en.pdf, blaðsíða 168 [2] https://euneighbourseast.eu/wp-content/uploads/2026/05/standard-eurobarometer-105-spring-2026_data-annex_en.pdf, blaðsíður 1 og 3 [3] https://euneighbourseast.eu/wp-content/uploads/2026/05/standard-eurobarometer-105-spring-2026_data-annex_en.pdf, blaðsíða 102 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar