Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar 21. júlí 2026 10:30 Á alþjóðlegum degi Sjögren-sjúkdóms er mikilvægt að staldra við og vekja athygli á sjúkdómi sem allt of margir þekkja lítið til – jafnvel innan heilbrigðiskerfisins. Sjögren er einn algengasti sjálfsofnæmis- og gigtarsjúkdómurinn. Þrátt fyrir það bíða margir árum saman eftir réttri greiningu. Ástæðan er sú að einkenni sjúkdómsins eru fjölbreytt og geta líkst mörgum öðrum sjúkdómum. Of oft er Sjögren enn lýst sem sjúkdómi sem valdi aðeins augn- og munnþurrki hjá eldri konum. Sú mynd er bæði úrelt og villandi. Sjögren er alvarlegur altækur sjálfsofnæmissjúkdómur sem getur haft áhrif á nær öll líffærakerfi líkamans. Þurrkur í augum og munni eru vissulega algeng einkenni en margir glíma einnig við mikla þreytu, langvinna verki, liðeinkenni, taugaeinkenni og skert lífsgæði. Hjá sumum leggst sjúkdómurinn á lungu, nýru, hjarta, bris eða önnur líffæri. Hann getur einnig valdið alvarlegum taugafræðilegum einkennum, svo sem úttaugakvilla, truflunum á ósjálfráða taugakerfinu og mígreni. Fólk með Sjögren er jafnframt í margfalt aukinni hættu á að þróa með sér eitlakrabbamein en þeir sem ekki eru með sjúkdóminn. Um 90% þeirra sem greinast eru konur en sjúkdómurinn getur einnig greinst hjá körlum og börnum. Gamlar hugmyndir um að þetta sé fyrst og fremst sjúkdómur eldri kvenna hafa því miður orðið til þess að margir bíða lengi eftir greiningu og viðeigandi meðferð. Sjögren kemur einnig oft fram samhliða öðrum sjálfsofnæmissjúkdómum, svo sem rauðum úlfum (lupus), liðagigt eða herslismeini. Um þriðjungur fólks með Sjögren er einnig með lupus og um helmingur hefur einkenni annars sjálfsofnæmissjúkdóms, jafnvel þótt formleg greining liggi ekki fyrir. Ein stærsta áskorunin er greiningin. Fólk leitar oft til mismunandi sérfræðinga með ólík einkenni – augnlæknis vegna augnþurrks, tannlæknis vegna munnþurrks og tannskemmda, taugalæknis vegna dofa eða heimilislæknis vegna síþreytu. Sjaldan sér einn heilbrigðisstarfsmaður alla heildarmyndina og því getur liðið langur tími þar til rétt greining fæst. Á þeim tíma getur sjúkdómurinn valdið óafturkræfum skemmdum og lífsgæði versnað verulega. Þrátt fyrir að engin lækning sé til við Sjögren er margt hægt að gera til að draga úr einkennum og bæta lífsgæði. Meðferð felst bæði í því að meðhöndla sjálfan bólgusjúkdóminn þegar þörf er á og að lina þau einkenni sem valda mestum erfiðleikum, svo sem augn- og munnþurrk. Einnig eru fjölmargar nýjar meðferðir í klínískum rannsóknum sem gefa sjúklingum von um betri framtíð. Fjárhagsleg byrði sjúkdómsins er einnig umtalsverð. Margir þurfa daglega að nota augndropa, augngel, munnsprey, munnskol, munnrakagel, sleipiefni og aðrar vörur til að vinna gegn miklum þurrki í augum, munni og öðrum slímhúðum. Þar sem greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands í mörgum þessara nauðsynlegu vara er lítil eða engin greiða sjúklingar stóran hluta kostnaðarins sjálfir. Þetta eru útgjöld sem falla til alla daga, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár, og leggjast ofan á annan kostnað sem fylgir langvinnum veikindum. Á Íslandi starfar Sjögren-hópur innan Gigtarfélags Íslands þar sem fólk með sjúkdóminn getur fengið fræðslu, stuðning og notið jafningjastuðnings. Slíkur stuðningur skiptir miklu máli því margir hafa lifað lengi með ósýnileg einkenni og upplifað að þeim sé ekki trúað eða að einkennin séu vanmetin. Að hitta aðra sem skilja áskoranir sjúkdómsins getur skipt sköpum. Við hvetjum einnig fólk sem glímir við langvarandi augn- og munnþurrk, mikla þreytu, endurteknar tannskemmdir eða önnur óútskýrð einkenni til að ræða við lækni um hvort Sjögren geti verið skýringin. Snemmgreining getur skipt sköpum og dregið úr hættu á alvarlegum fylgikvillum. Við þurfum meiri þekkingu á Sjögren. Við þurfum að stytta tímann að greiningu, efla rannsóknir, bæta aðgengi að meðferð og tryggja að fólk fái þann stuðning sem það þarf. Jafnframt þarf að endurskoða greiðsluþátttöku í nauðsynlegum vörum sem fólk með Sjögren þarf að nota daglega vegna alvarlegs þurrks í slímhúðum. Enginn ætti að þurfa að bera svo mikinn kostnað vegna grunnmeðferðar við langvinnum sjálfsofnæmissjúkdómi. Sjögren er ekki „bara þurrkur“. Hann er alvarlegur sjálfsofnæmissjúkdómur sem getur haft víðtæk áhrif á heilsu, atvinnuþátttöku, fjölskyldulíf og lífsgæði. Á Alþjóðlegum degi Sjögren-sjúkdóms skulum við auka þekkingu, eyða ranghugmyndumog minna á að á bak við ósýnileg einkenni er fólk sem á skilið skilning, snemmbæra greiningu og bestu mögulegu meðferð. Höfundur er formaður Gigtarfélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar