Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar 21. júlí 2026 08:32 Lengi hefur legið fyrir hæstaréttardómur um að núverandi stjórn fiskveiða feli í sér ólíðandi mismunun sem ekki verður búið við til framtíðar gagnvart komandi kynslóðum og sjávarbyggðunum. Stjórnvöld hafa í gegnum tíðina lofað endurbótum á kerfinu og áttu t.d. mjög takmarkaðar strandveiðar að vera fyrsti liður í þeim. Sjávarútvegurinn í ESB Almennt er megn óánægja meðal sjómanna í strandríkjum ESB með sameiginlega stefnu ESB í sjávarútvegsmálum. Raddir og sjónarmið þeirra fá litla áheyrn innan bandalagsins enda er greinin brotabrot af efnahagsumsvifum ESB og hefur farið hratt minnkandi. Veiðiheimildum er úthlutað frá Brussel til aðildarríkjanna eftir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Ef Ísland gengur í bandalagið afsalar þjóðin sér stjórn á veiðum utan 12 mílnanna en hefur mjög takmörkuð áhrif innan 12 mílnanna og getur í engu vikið frá ákvörðun Brussel um heildarveiðikvóta í efnahagslögsögunni. Evrópusambandið veitir aðildarríkjum leyfi til að ívilna trillukarlinum, þ.e. minni fiskiskipum undir 12 metrum sem veiða með vistvænum veiðarfærum, m.a. hvað varðar minni skriffinnsku, nýliðunarkvóta og viðbótarveiðiheimildir. Allt eru þetta aðgerðir sem auðvelt væri að fara í án aðildar að Evrópusambandinu ef raunverulegur pólitískur vilji væri til þess að fara að áliti Mannréttindanefndar SÞ og fyrrgreindum hæstaréttardómi. Það er umhugsunarefni að stjórnarandstaðan á Alþingi hefur lagt stein í götu allra aðgerða í þá átt m.a. Í andstöðu við strandveiðar og lengst hafa gengið í þeim efnum þingmenn Mið- og Sjálfstæðisflokks. Það er áhugaverð staðreynd að fiskimið ESB og Bretlands skiluðu árlega á land um einni milljón tonna af þorski og ýsu en nú er aflinn um tíundi hluti þess sem hann var áður en stefnan var tekin upp. Engin alvöruumræða er innan stjórnkerfis ESB um þá furðu sem sjómenn hafa ítrekað bent á, að ofveiðin virðist vaxa í takt við samdrátt og minnkaðar veiðar. Ef mælingar eða réttara sagt útreikningar á stærð fiskistofna eru ekki í samræmi við væntingar reiknilíkana er skuldinni skellt á veiðar og ef engar veiðar fara fram eru það veiðarnar sem voru einu sinni. Það á jafnvel við um stofna sem augljóslega glíma við skort á fæðu ef horft er á meðalþyngd eftir aldri sem fer venjulega fallandi þegar dregið er úr veiðum. Er von til þess að fiskveiðistefna ESB breytist? Það er ólíklegt ef mið er tekið af „grænum“ sjónarmiðum innan ESB og stöðugt minni umsvifum og áhrifum sjávarútvegsins. Fólk hefur verið alið upp í því að einhver stórkostleg ofveiði eigi sér stað þrátt fyrir að veiðar séu svipur hjá sjón miðað við það sem áður gerðist og komið er á stjórnkerfi innan bandalagsins sem ver sjálft sig. Í framhaldinu má spyrja hvort hægt sé að komast undan sameiginlegri stefnu bandalagsins með varanlegri undanþágu. Ef það á svo að verða þurfa ríkisstjórnir allra aðildarríkja ESB, leiðtogaráðið og ráðherraráðið að samþykkja undanþáguna. Hvert og eitt einasta aðildarríki hefur neitunarvald. Ef eitt ríki (t.d. stórt fiskveiðiland eins og Spánn eða Frakkland) leggst gegn undanþágunni gengur hún ekki í gegn. Öll þjóðþing ESB þurfa að staðfesta undanþáguna og Evrópuþingið, auk þess sem framkvæmdastjórn ESB þyrfti að veita blessun sína en reyndar ekki páfinn í Róm. Það er því mitt mat að ekki sé eftir miklu að slægjast fyrir þá sem vilja sjá löngu tímabærar umbætur og aukið jafnærði í íslenskum sjávarútvegi að fara inn í bandalagið. Það er helst að innganga gæti leitt til umbóta á úreltum vigtarreglum og geri ólöglega milliverðlagningu á afla illmögulega. Nær væri fyrir þá sem vilja sjá skjótar jákvæðar breytingar á sjávarútvegi að ganga til liðs við Flokk fólksins og efla baráttu hans fyrir auknu frelsi og jafnræði í íslenskum sjávarútvegi. Ef þjóðin ákveður að ganga inn í bandalagið er nauðsynlegt að gera eftirfarandi breytingar á íslenskum lögum til þess koma í veg fyrir að Ísland verði brothætt byggð. Setja skýrt auðlindaákvæði um fiskimiðin í stjórnarskrá. Lækka kvótaþakið og framfylgja því. Aðskilja veiðar og vinnslu. Tryggja að fiskur fari ekki óunninn úr landi nema hann hafi verið boðinn upp innanlands áður. Setja fyrirvara við núverandi ráðgjöf ESB og sérstaklega með tilliti til veiða á grunnsævi. Gera kröfu um að eigendur og stjórnendur í útgerð séu Íslendingar eða hafi „raunveruleg tengsl við landið“. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar