Körfubolti

Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sveinn Búi Birgisson er snúinn aftur heim úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum.
Sveinn Búi Birgisson er snúinn aftur heim úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum. lynn university

Sveinn Búi Birgisson hefur gengið frá samningi við lið Hattar í Bónus deild karla í körfubolta en hann kemur til félagsins eftir fjögur ár í bandaríska háskólaboltanum.

Sveinn Búi er Reykvíkingur og hóf ferilinn hér á landi með KR en varð svo Íslandsmeistari með Val árið 2022 áður en hann fór út. 

Kristófer Acox, Ástþór Atli Svalason og Sveinn Búi fagna Íslandsmeistaratitlinum 2022. vísir / vilhelm

Hann á sterk tengsl við Austurlandið þar sem móðir hans er fædd og uppalin á Egilsstöðum, samkvæmt tilkynningu Hattar.

Þessi tveggja metra hái framherji lék tvö ár með liði Siena í bandaríska háskólaboltanum og spilaði svo síðustu tvö ár með liði Lynn University.

Höttur fór beint upp úr 1. deildinni í vor eftir að hafa fallið í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×