Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar 8. júlí 2026 08:15 Alþingi samþykkti svohljóðandi þingsályktun 16. júlí árið 2009: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Þessu verkefni lauk ekki eins og til var ætlast og þá klofnaði þjóðin og hefur verið klofin síðan. Nú stöndum við frammi fyrir nýju ferli samkvæmt ákvörðun Alþingis. Að þessu sinni með tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem við svörum fyrst, hvert fyrir sig beint og milliliðalaust, spurningunni: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Engin ástæða er til þess að ætla annað en allir alþingismenn og stjórnmálaflokkar virði niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Verði svar þjóðarinnar JÁ hefjast samningaviðræður og í fyllingu tímans verður aðildarsamningur lagður í dóm þjóðarinnar, aftur beint og milliliðalaust. Svari þjóðin JÁ öðru sinni verður Ísland aðili að Evrópusambandinu. Segi þjóðin NEI í fyrri atkvæðagreiðslunni hefjast engar samningaviðræður og ekkert breytist. Sama gildir um seinni atkvæðagreiðsluna, hafni þjóðin aðildarsamningnum verður Ísland ekki aðili að Evrópusambandinu. Ferlið er eins opið, einfalt, gegnsætt og lýðræðislegt og hugsast getur. Þjóðin á fyrsta og síðasta orðið í þessu stóra og mikilvæga máli sem varðar sameiginlega framtíð okkar. Við þurfum öll að taka yfirvegaða afstöðu og muna að í kjörklefanum erum við ein og þar segir enginn okkur fyrir verkum, engir flokkar, engin samtök og engin hagsmunaöfl. Við ráðum okkur sjálf. PS.Hvet ykkur öll til þess að skoða upplýsingasíðu Landskjörstjórnar:www.thjodaratkvaedi.is Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Steindór Valdimarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Alþingi samþykkti svohljóðandi þingsályktun 16. júlí árið 2009: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Þessu verkefni lauk ekki eins og til var ætlast og þá klofnaði þjóðin og hefur verið klofin síðan. Nú stöndum við frammi fyrir nýju ferli samkvæmt ákvörðun Alþingis. Að þessu sinni með tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem við svörum fyrst, hvert fyrir sig beint og milliliðalaust, spurningunni: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Engin ástæða er til þess að ætla annað en allir alþingismenn og stjórnmálaflokkar virði niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Verði svar þjóðarinnar JÁ hefjast samningaviðræður og í fyllingu tímans verður aðildarsamningur lagður í dóm þjóðarinnar, aftur beint og milliliðalaust. Svari þjóðin JÁ öðru sinni verður Ísland aðili að Evrópusambandinu. Segi þjóðin NEI í fyrri atkvæðagreiðslunni hefjast engar samningaviðræður og ekkert breytist. Sama gildir um seinni atkvæðagreiðsluna, hafni þjóðin aðildarsamningnum verður Ísland ekki aðili að Evrópusambandinu. Ferlið er eins opið, einfalt, gegnsætt og lýðræðislegt og hugsast getur. Þjóðin á fyrsta og síðasta orðið í þessu stóra og mikilvæga máli sem varðar sameiginlega framtíð okkar. Við þurfum öll að taka yfirvegaða afstöðu og muna að í kjörklefanum erum við ein og þar segir enginn okkur fyrir verkum, engir flokkar, engin samtök og engin hagsmunaöfl. Við ráðum okkur sjálf. PS.Hvet ykkur öll til þess að skoða upplýsingasíðu Landskjörstjórnar:www.thjodaratkvaedi.is Höfundur er lögfræðingur.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar