Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar 5. júlí 2026 08:31 Margir landsmenn sakna þess að hafa ekki fastan tengipunkt við heilbrigðiskerfið, ekki síst þau sem þurfa reglulega á heilbrigðisþjónustu að halda, eins og langveikt og eldra fólk. Norsk rannsókn sýndi að fólki sem hefur fastan heimilislækni farnast betur og þarf síður á innlögnum á sjúkrahús að halda. Rúmlega 50% Íslendinga hafa fastan heimilislækni samanborið við 95% í Noregi. Þetta hlutfall er því alltof lágt á Íslandi en það stendur til bóta. Fastur heimilislæknir fyrir alla Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir undir lið 14 að unnið verði „að þjóðarmarkmiði um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn“. Í kosningastefnu Samfylkingar var þetta kynnt sem 10 ára markmið. Enda er ljóst að það mun taka sinn tíma að uppfylla markmiðið þar sem hér er umtalsverður skortur á heimilislæknum. Fjöldi þeirra er nú um 61 á hverja 100 þúsund íbúa samanborið við meðaltal Norðurlandanna sem er um 89 á hverja 100 þúsund íbúa samkvæmt lykilvísum embættis landlæknis. Þá bendir nýleg könnun sömuleiðis á þennan mönnunarvanda heimilislækna. Á undanförnum árum hefur verið unnið að fjölgun heimilislækna og margir lagt þar hönd á plóg, ekki síst læknar sem eiga þakkir skyldar. Nú er staðan sú að fjöldi sérnámslækna í heimilislækningum hefur aldrei verið meiri. Þeir voru 38 árið 2017 en eru 120 árið 2026. Fyrir skömmu var ákveðið að efla sérnám í heimilislækningum enn frekar og í nýrri fjármálaáætlun er stutt myndarlega við sérnám lækna. Þar til bætt hefur verið úr verður eldra fólk og langveikt í forgangi varðandi skráningu á heimilislækni. Á rúmu ári hefur hlutfall fólks með fastan heimilislækni nú farið úr 85% í 95% hjá elsta hópnum á höfuðborgarsvæðinu, og úr 75% í 80% hjá 60 ára og eldri. Reglugerðardrög Nýverið voru birt til umsagnar drög að reglugerð um heilsugæslu. Reglugerðin verður liður í því að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað notenda heilbrigðisþjónustu og að skýra kröfur til þjónustunnar. Birting reglugerðardraganna í samráðsgátt vakti hörð viðbrögð meðal heimilislækna þar sem í þeim kemur áherslan á fastan heimilislækni ekki fram. Viðbrögð lækna við þessu – því að í reglugerðardrögunum sé ekki orðað skýrt og afdráttarlaust að einstaklingur skuli að jafnaði skráður hjá tilgreindum heimilislækni – eru skiljanleg. Fyrir liggur skýr sýn ríkisstjórnar og ráðherra eins og að ofan er rakið. Ákvæðið hefði átt að orðast …,,að jafnaði skráður hjá heimilislækni eða á þverfaglegt teymi heilbrigðisstarfsmanna“ (sjá síðar). Því er ljóst að ákvæðinu í reglugerðardrögunum verður breytt. Samráð er mikilvægt og nauðsynlegt og til þess er umsagnarferlið í samráðsgátt, þ.e. að draga fram ábendingar og athugasemdir um hvað færa megi til betri vegar. Tími til umsagna um reglugerðina verður lengdur vegna sumarleyfistíma. Umbótaverkefni í heilsugæslu Heilbrigðisráðuneytið hefur sett af stað fjölda umbótaverkefna sem hafa það að markmiði að efla heilsugæsluna. Verkefnin verða byggð á samvinnu við hagsmunaaðila og þeirri sýn að skjólstæðingar fái rétta þjónustu, á réttum tíma og þannig að þekking heilbrigðisstarfsmanna nýtist sem best. Víða er framþróun á teymisvinnu fagstétta og skipulag þannig að það ætti einnig að vera hægt að skrá skjólstæðinga hjá teymi á heilsugæslu, ekki síst meðan skortur er á heimilislæknum eins og verið hefur. Í slíku teymi eru ætíð heimililæknir og hjúkrunarfræðingur en að auki gætu verið í teymi félagsráðgjafi, klínískur lyfjafræðingur, næringarfræðingur, sálfræðingur, sjúkraþjálfari, sjúkraliði og heilbrigðisgagnafræðingur, allt eftir verkefnum og aðstæðum á hverjum stað. Þetta fyrirkomulag hefur gefið góða raun, t.d. á Akureyri, og er hugmyndin sú að allir geti átt fastan tengipunkt við heilbrigðiskerfið til að tryggja örugga og samfellda þjónustu. Með samræmdum umbótum, m.a. á sviði stafrænnar þjónustu, fjármögnunarlíkans, skipulags, teymisvinnu og eflingar sérnáms í heimilislækningum, er ætlunin að leggja grunn að öflugri og aðgengilegri heilsugæslu til framtíðar með áherslu á gæði þjónustu og öryggi skjólstæðinga. Höfundur er heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma D. Möller Heilbrigðismál Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar