Snæddi með furstanum af Mónakó Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. júlí 2026 14:13 Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, snæddi hádegisverð með Alberti, fursta af Mónakó, á Bessastöðum. Forsetaembættið Halla Tómasdóttir forseti Íslands snæddi hádegisverð með Alberti, fursta af Mónakó. Ræddu þau meðal annars hvernig smáríki geta haft áhrif og gildi öflugrar alþjóðlegrar samvinnu á tímum mikilla breytinga. „
Það er dýrmætt að eiga samtöl sem minna okkur á að stærð ríkja ræður ekki úrslitum – heldur hugmyndir, samstarf og viljinn til að leggja sitt af mörkum,“ segir forseti í tilkynningu. Albert fursti er hér fyrir miðju ásamt eiginkonu sinni, suðurafrísku sunddrottningunni Charlene, og börnum þeira tveimur, tvíburunum Gabrielle og Jacques. Fjölskyldan var viðstödd opnunarhátíð í Europa Park fyrr í vikunni. Furstahöllin Albert II. hefur verið þjóðhöfðingi örríkisins Mónakó frá árinu 2005. Albert er fyrrum Ólympíufari og keppti á bobsleða frá 1988 til 2002. Þá er hann með svarta beltið í júdó. Mónakó er staðsett við Miðjarðarhafsströndina, á milli Frakklands og Ítalíu. Íbúafjöldi er tæp fjörutíu þúsund manns og er landið þekkt afdrep auðmanna. Grace Kelly var meðal annars þekkt fyrir ótrúlega fegurð sína. Getty Albert fursti er sonur Rainiers III. og hinnar goðsagnakenndu Grace Kelly. Kelly var margverðlaunuð Hollywood-leikkona sem lét af störfum tuttugu og sex ára gömul, fluttist til Mónakó og giftist Rainier fursta. Kelly lést fimmtíu og tveggja ára gömul eftir bílslys. Mikill áhugi furstans á bílum hefur ef til vill orðið hönnuðum þessa nýja hluta Europa Park innblástur. Furstahöllin Ekki liggur fyrir hvort Albert er staddur hér á landi í opinberum embættisgjörðum en Facebook-síða hallarinnar í Mónakó sagði síðast frá því að furstinn hefði í upphafi vikunnar, ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum, verið viðstaddur opnun nýs hluta skemmtigarðsins Europa Park sem kenndur er við Mónakó. Skemmtigarðurinn er einn sá stærsti og vinsælasti í Evrópu og er hver hluti garðsins byggður á ákveðnu landi.
Forseti Íslands Mónakó Halla Tómasdóttir Mest lesið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Lífið Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Sól sló í gegn á tískuviku í London Tíska og hönnun Edda með tárin í augunum Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Fleiri fréttir „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu Sjá meira