„Frábært að fá Martin aftur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2026 22:30 Craig Pedersen freistar þess að koma Íslandi á HM í fyrsta sinn. sýn sport Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, er hæstánægður með að hafa endurheimt Martin Hermannsson fyrir mikilvæga leiki gegn Ítalíu og Bretlandi í undankeppni HM. Sigur í öðrum hvorum leiknum kemur Íslandi á lokastig undankeppninnar.
Ísland vann Ítalíu ytra í nóvember á síðasta ári, 76-81, og Pedersen er bjartsýnn á að endurtaka leikinn í Laugardalshöllinni annað kvöld. „Það yrði stórkostlegt að vinna Ítalíu aftur. Þeir koma til okkar með mjög sterkt lið, eins og alltaf. Við höfum unnið þá áður á heimavelli og vonandi komum við með orkumikinn leik, náum í sigur og förum svo til Bretlands til að ná í annan sigur þar,“ sagði Pedersen á landsliðsæfingu í Ásgarði. Klippa: Viðtal við Craig Pedersen Eftir sigurinn á Ítalíu tapaði Ísland fyrir Bretlandi, 84-90, á heimavelli. „Fyrri leikurinn við Breta var vonbrigði, varðandi orkustigið okkar í fyrri hálfleiknum. Við komum með mikla orku í síðustu tólf mínúturnar en það var of mikið að lenda tuttugu stigum undir gegn góðu liði Breta. En við sýndum að við getum keppt við þá og vonandi sjáum við fulla orku frá fyrstu mínútu núna,“ sagði Pedersen. Þurfa að hitta vel í upphafi leiks Pedersen segir að góð byrjun geti gert mikið fyrir íslenska liðið gegn því ítalska. „Við höfum getað unnið þá upp á síðkastið og það hefur verið stórkostlegt. Eitt lykilatriði þar hefur verið að hitta vel í byrjun, sem hefur gefið okkur sjálfstraust. Við höfum svo getað haldið stillingu og þessu sjálfstrausti út leikina, jafnvel þegar þeir komast á siglingu og ná 4-6 stiga forskoti. Vonandi spilum við aftur svona vel og höfum orkuna til að vinna þá,“ sagði Pedersen. Martin og Elvar passa svo vel saman Eitthvað er um skakkaföll í íslenska hópnum en Martin er kominn aftur inn í hann eftir að hafa misst af leikjunum gegn Litáen. „Það er frábært að fá Martin aftur. Þeir Elvar [Már Friðriksson] passa svo vel saman því þeir geta báðir gert svo mikið. Hin liðin geta ekki bara einbeitt sér að öðrum þeirra og þeir hjálpa hvor öðrum vel. Við þurfum á góðum leik frá þeim að halda til að vinna,“ sagði Pedersen að lokum. Viðtalið við Pedersen má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Tengdar fréttir Fleiri augu á mér í þessari deild „Þetta er bara eitthvað sem kom frá umboðsmanninum. Auðvitað þekki ég svæðið og hef komið þarna en þú veist, þetta er bara körfuboltaleg ákvörðun og síðan náttúrulega hjálpar til að það sé beint flug og maður er náttúrulega með fjölskyldu og það er þægilegt að fara fram og til baka. En þetta er hörkudeild,“ segir Kristinn Pálsson á landsliðsæfingu í vikunni. 1. júlí 2026 17:32 „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Mörg lið höfðu samband við Hilmar Smára Henningsson þar sem hann var samningslaus hjá Stjörnunni. Hann skoðaði aðra möguleika en endaði á að framlengja samning sinn við Stjörnuna. 1. júlí 2026 16:15 „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Tryggvi Snær Hlinason hefur ásamt norskum samherja sínum búið til norræna menningu í spænska körfuboltaliðinu Bilbao Basket. Hann nýtur lífsins á Norður-Spáni en er nú mættur til Íslands til að hjálpa landsliðinu að komast á HM í fyrsta sinn. 1. júlí 2026 08:00 „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Elvar Már Friðriksson mun líklega á næstu dögum ákveða næsta skref sitt á körfuboltaferlinum, eftir dvöl sína í Póllandi og óvænt stopp á Tenerife í lok leiktíðar. Það skref mun hann taka með fjölskyldu sinni sem dvalið hefur á Íslandi í vetur. 29. júní 2026 20:31 Mest lesið Öll spjót beinast að Írum og Heimi Fótbolti Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Fótbolti Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Handbolti „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Fótbolti Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Íslenski boltinn Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Íslenski boltinn Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Fótbolti Baulað á Luke Littler í Hollandi Sport Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun Fótbolti Fleiri fréttir Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Sjá meira
Fleiri augu á mér í þessari deild „Þetta er bara eitthvað sem kom frá umboðsmanninum. Auðvitað þekki ég svæðið og hef komið þarna en þú veist, þetta er bara körfuboltaleg ákvörðun og síðan náttúrulega hjálpar til að það sé beint flug og maður er náttúrulega með fjölskyldu og það er þægilegt að fara fram og til baka. En þetta er hörkudeild,“ segir Kristinn Pálsson á landsliðsæfingu í vikunni. 1. júlí 2026 17:32
„Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Mörg lið höfðu samband við Hilmar Smára Henningsson þar sem hann var samningslaus hjá Stjörnunni. Hann skoðaði aðra möguleika en endaði á að framlengja samning sinn við Stjörnuna. 1. júlí 2026 16:15
„Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Tryggvi Snær Hlinason hefur ásamt norskum samherja sínum búið til norræna menningu í spænska körfuboltaliðinu Bilbao Basket. Hann nýtur lífsins á Norður-Spáni en er nú mættur til Íslands til að hjálpa landsliðinu að komast á HM í fyrsta sinn. 1. júlí 2026 08:00
„Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Elvar Már Friðriksson mun líklega á næstu dögum ákveða næsta skref sitt á körfuboltaferlinum, eftir dvöl sína í Póllandi og óvænt stopp á Tenerife í lok leiktíðar. Það skref mun hann taka með fjölskyldu sinni sem dvalið hefur á Íslandi í vetur. 29. júní 2026 20:31