Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Drífa 15. júlí 2026 08:20 Vilhjálmur Bretaprins heimsótti höfuðstöðvar ENSO í tilefni Earthshot Prize árið 2023 og ræddi við Gunnlaug Erlendsson, stofnanda ENSO. ENSO er breskt tæknifyrirtæki og fyrsti B Corp-vottaði dekkjaframleiðandi heims sem sérhæfir sig eingöngu í rafbílum. Nú eru dekkin fáanleg á Íslandi en þau eru flutt inn af Mítru og fást í vefverslun Drífu.
Á Íslandi, þar sem hlutfall rafbíla er með því hæsta í heiminum, geta eigendur Tesla Model 3 og Model Y nú fengið sérhönnuð úrvalsdekk til að auka drægni og öryggi og minnka um leið umhverfisáhrif. ENSO Premium eru úrvals hátækni rafbíladekk (UHP) með A/A-einkunn samkvæmt dekkjamerkingum Evrópusambandsins. Þau hafa fengið hæstu mögulegu einkunnir í orkunýtingu og hæsta öryggi og grip í bleytu. Þessi einkunnasamsetning er afar fágæt í hraðaflokki dekkjanna (Y-flokkur). Í rannsóknum ENSO og Transport for London (TfL) mælst aukning í bæði drægni og miklu minni losun svifryks miðað við hefðbundin dekk. ENSO Premium eru úrvals hátækni rafbíladekk (UHP) með A/A-einkunn samkvæmt dekkjamerkingum Evrópusambandsins. „Markmið ENSO hefur alltaf verið að flýta fyrir innleiðingu rafbíla með því að bjóða upp á hágæða dekk sem efla frekar en draga úr rafbíladrægni. Með ENSO Premium erum við að fylla upp í tómarúm á dekkjamarkaðinum með dekkjum sem eru hönnuð fyrir sérþarfir rafbíla. Niðurstaðan er dekk sem skilar fleiri kílómetrum á hverri hleðslu,“ segir Gunnlaugur Erlendsson, stofnandi og forstjóri ENSO. Fyrir utan að vera fyrsta og eina fyrirtæki heims með B Corp vottun sem þar að auki einbeitir sér eingöngu að að rafbílum er ENSO einnig að þróa fyrstu kolefnishlutlausu dekkjaverksmiðju heims í Bandaríkjunum. Klippa: ENSO er fyrsta dekkjafyrirtækið í heiminum sem sérhæfir sig eingöngu í rafbílum. Á myndbandinu talar Vilhjálmur Bretaprins um ENSO á Earthshot Price Sérstaklega hönnuð fyrir Tesla og íslenskar aðstæður Tesla ökumenn vita vel að mörg dekk skila sjaldan þeirri drægni sem lofað er. ENSO Premium eru sérhönnuð með þarfir Tesla Model 3 og Model Y í huga og með A-einkunn í drægni til að ná sem mestu úr hverri hleðslu. Þetta skiptir miklu máli á Íslandi, þar sem vegalengdir á milli bæja geta verið langar og færri hleðslustöðvar eru utan höfuðborgarsvæðisins. A-einkunn fyrir öryggi á blautum vegum skiptir líka miklu máli á Íslandi þar sem rigning og slabb eru algengar aðstæður stóran hluta ársins. ENSO Premium dekk eru hönnuð til að skila öryggi og frammistöðu á íslenskum vegum. Að auki skilar minna veltiviðnám lægri orkunotkun á hvern kílómetra sem þýðir bæði minni kostnað og minni kolefnisspor í hvert skipti sem Tesla eigandinn leggur af stað. Heimsþekkt í sjálfbærni og nýsköpun ENSO hefur vakið athygli víða um heim. Árið 2023 komst fyrirtækið í úrslit Earthshot verðlaunanna, sem eru umhverfisverðlaun Vilhjálms Bretaprins, í flokknum Clean Our Air. Árið 2024 hóf Uber alþjóðlegt samstarf við ENSO með það að markmiði að koma Uber ökumönnum á umhverfisvænni dekk. Og í júní 2025 lýsti Dara Khosrowshahi, forstjóri Uber, eindregnum stuðningi við ENSO á London Climate Action Week og tók sérstaklega fram mikilvægt hlutverk ENSO í sjálfbæru borgarlegu samgöngukerfi. ENSO dekkin eru einnig í notkun á hluta af hinum þekktu svörtu leigubílum Lundúna, með samþykki LEVC (London Electric Vehicle Company), framleiðanda bílanna. Frekari upplýsingar má finna á vef ENSO. Allt á einum stað hjá Drífu Dekkin fást nú þegar fyrir Tesla Model 3 og Model Y og eru fáanleg í vefverslun Drífu. Magnús Örn Gunnarsson og Jóhann Tómas Portal eru stofnendur Drífu, hugbúnaðarfélags sem endurhugsar dekkjakaup og bifreiðaþjónustu á Íslandi. Drífa gerir Íslendingum kleift að finna réttu dekkin, bóka dekkjaskipti og fá þjónustu heim að dyrum, allt á einum stað. Magnús Örn Gunnarsson, Hakon Broder Lund og Jóhann Tómas Portal. Magnús er framkvæmdastjóri Drífu og Jóhann er tæknistjóri. Hakon Broder Lund er hönnunarstjóri og markaðsstjóri fyrirtækisins og rekur Nordr Agency Þremenningarnir byggðu Drífu og hugbúnaðurinn var byggður af NoLimit, íslensku hugbúnaðarhúsi með áherslu á nýjustu tækni sem Magnús og Jóhann stýra einnig og er fyrsti viðurkenndi samstarfsaðili Anthropic og Claude á Íslandi. Drífa á nú í viðræðum við fyrirtæki í Nýja-Sjálandi og Ástralíu um að setja upp kerfi og lausnir félagsins, með það að markmiði að innleiða þær á dekkjamarkaði í báðum löndum. Verði af samstarfinu markar það fyrsta skrefið í útflutningi á íslenskri hugbúnaðarlausn Drífu til alþjóðlegs dekkjamarkaðar. Hátt í hundrað þúsund hafa þegar heimsótt vefsíðuna drifa.is og hátt í annað þúsund hafa skráð sig í vildarklúbbinn. Drífa er í samstarfi við Tyre Reviews sem Nordic Data Partner og er það í fyrsta sinn sem fyrirtæki fær aðgang að gagnagrunni þeirra með þessum hætti. Um er að ræða samstarf sem á sér ekki hliðstæðu í heiminum. Gögnin liggja til grundvallar dekkjaráðgjöf og Dekkjaráðgjafa Drífu, sem byggir tillögur á rauntíma frammistöðumælingum í stað hefðbundinna vörulýsinga. „Þegar lausn er rétt verður hún nánast ósýnileg. Einstaklingurinn finnur bara að þetta virkar,“ segir Magnús. „Við hönnuðum Drífu út frá því að einfalda ákvarðanatöku og auka öryggi á veginum fyrir alla. Hátt í hundrað þúsund hafa þegar heimsótt síðuna og hátt í annað þúsund hafa skráð sig í vildarklúbbinn okkar. Við hvetjum landsmenn til að prófa og sjá hversu einfalt þetta er,“ segir Jóhann. Hægt að panta umfelgunarþjónustu heim Guntis rekur Dekkjabílinn, sem er kominn í samstarf við Drífu. Dekkjabílinn er nýtt samstarfsverkefni Drífu og Seasonal Tyre Change en Seasonal Tyre Change hefur undanfarin ár að umfelgað og sinnt neyðarþjónustu og er nú að þróa samstarf við Drífu. „Við erum byrjuð að bjóða uppá þá þjónustu fyrir takmarkaðan hóp. Einstaklingur getur keypt dekk hjá Drífu, bókað dekkjabílinn og hann mætir til þín og umfelgar á vinnustað eða fyrir utan heima, svo getur hann farið með gömlu dekkin á dekkjahótel eða fargað þeim ef þau eru búin," útskýrir Magnús Örn. Þjónustan er þó enn í þróun og því takmarkaðar bókanir í boði. „Við höfum verið að prófa þetta fyrirkomulag í sumar og munum rúlla því út fyrir veturinn."
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Fleiri fréttir Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira